Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.10.1983, Qupperneq 52

Ægir - 01.10.1983, Qupperneq 52
NÝ FISKISKIP Gullver NS 12 Nýr skuttogari, m/s Gullver NS12, bættist við fiski- skipastól landsmanna 12. júlí s.l., en þann dag kom skipið í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Seyðis- fjarðar. Gullver NS ersmíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk i Flekkefjord i Noregi og er smíða- númer 132 hjá stöðinni. Gullver NS, sem er smíðaður eftir teikningu frá Ankerlökken Marine A/S, er tólfti skuttogaririn sem umrœdd stöð smíðar fyrir íslend- inga, en auk þess hefur stöðin séð um smíði á einum skuttogaraskrokk fyrir Slippstöðina, sem Slippstöðin lauk við frágang á og afhenti í apríl 1977 (Björgúlfur EA). Skrokkar allra þessara skuttogara eru smíðaðir hjá Kvina Verft í Noregi, sem annast hefur þann þátt smíðinnar fyrir Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk. Peir skuttogarar sem stöðin hefur áður smíðað fyrir íslendinga eru: Júlíus Geirmundsson ÍS (nú Bergvík KE), Guðbjartur ÍS, Bessi ÍS, Framnes 1 ÍS og Björgvin EA, systurskip, mesta lengd 46.56 m; - Guð- björg ÍS (nú Snœfugl SU), GylliríS, ÁsgeirRE ogÁs- björn RE, systurskip smíðuð eftir sömu frumteikn- ingu, en 3.3 m lengri en upphaflegu skipin; - Júlíus Geirmundsson ÍS, mesta lengd 53.45 m; Guðbjörg ÍS, mesta lengd 55.40 m; og nú síðast Gullver NS, sem smíðaður er eftir sömu frumteikningu og 2. kynslóðin (togarar nr. 6-9) en breytt skrokklögun afturskips (meira skrúfupláss) og breytt fyrirkomulag einkum varðandi íbúðir og togþilfar. Togþilfar skipsins er að fyrirkomulagi til hliðstœtt því sem er í nýju Guðbjörg- inni, þ.e. gangurfyrir miðjufram að stefni með tveim- ur tvöföldum bobbingarennum ogþilfarshús ísíðum. Gullver NS er í eigu Gullbergs h.f. á Seyðisfirði og kemur í stað samnefnds skuttogara (mesta lengd 40.0 m) sem keyptur var 4ra ára gamall til landsins árið 1972. Eldra skipið gekk upp ísmíðasamningfyrir nýja skipið. Seyðfirðingar eiga fyrir einn skuttogara, Gull- berg NS, smíðaður í Noregi árið 1977. Skipstjóri á Gullveri NS er Jón Pálsson og 1. vélstjóri Einar J. Hilmarsson. Framkvæmdastjóri útgerðar er Adolf Guðmundsson. Almenn lýsing: Skipið er smíðað úr stáli skv. reglum Det Norske Veritas í flokki i^lAl, Stern Trawler, Ice C, |J(MV. Skipið er skuttogari með tveimur þilförum stafna á milli, skutrennu upp á efra þilfar, hvalbak á fremri hluta efra þilfars og brú aftantil á hvalbaksþilfari. Mesta lengd ......................... 49.86 m Lengd milli lóðlína ................. 44.00 m Breidd ............................... 9.50 m Dýpt að efra þilfari ................. 6.60 m Dýpt að neðra þilfari ................ 4.35 m Eiginþyngd ............................ 673 t Særými (djúprista 4.30 m) ............ 1061 t Burðargeta (djúprista 4.30) ........... 388 t Lestarrými ............................ 490 m3 Brennsluolíugeymar .................. 129.3 m3 Daggeymir ............................. 2.5 m3 Ferskvatnsgeymar...................... 68.2 m’ Ganghraði (reynslusigling) ........... 13.3 hn Rúmlestatala .......................... 423 brl Skipaskrárnúmer ...................... 1661 Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið framan frá: Stafnhylki fyrir brennsluolíu; keðju- kassar ásamt botngeymi fyrir brennsluolíu; fiskilest með botngeymum fyrir brennsluolíu (framantil), og ferskvatn (aftantil); vélarúm með síðugeymum; og skutgeyma aftast fyrir brennsluolíu. Fremst á neðra þilfari er stafnhylki fyrir brennslu- olíu en þar fyrir aftan íbúðir. Aftan við íbúðir er vinnuþilfar með fiskmóttöku og aftast stýrisvélarrúm fyrir miðju. Til hliðar við fiskmóttöku og stýrisvélar- rúm er verkstæði og vélarreisn s.b.-megin, en b.b.- megin geymsla og vélarreisn. Fremst á efra þilfari (í hvalbak) er aðstaða til við- gerða á veiðarfærum og veiðarfærageymslur, en þat fyrir aftan eru þilfarshús í síðum; s.b.-megin ísvéla- klefi og klefi fyrir raf-/vökvaþrýstikerfi vindna, en b.b.-megin eru íbúðir og þar aftan við stigagangút niður á vinnuþilfar. Milli síðuhúsa er gangur fynr boggingarennur. Togþilfar skipsins er aftan við hval- bak og tengist áðurnefndum gangi. Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu, og greinist hún 1 fjórar bobbingarennur, sem ná fram að stafni, þanmg að unnt er að hafa tvær vörpur undirslegnar og til' búnar til veiða. Aftarlega á togþilfari, til hliðar við vörpurennu, eru síðuhús (skorsteinshús), og er stiga- gangur í s.b.-húsi niður á neðra þilfar. Yfir afturbrun 556 - ÆGIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.