Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1983, Page 57

Ægir - 01.10.1983, Page 57
Hilmar Kristjónsson f. 11. jan. 1918, d. 30. sept. 1983 Þann 30. september s.l. lést í Reykjavík Hilmar Krist- ]ónsson, fyrrum yfirmaður veiðarfæradeildar Mat- væla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm. Hilmar fæddist í Reykjavík 11. janúar 1918, sonur Fjónanna Guðlaugar M. Guðjónsdóttur og Kristjóns Ólafssonar. . Hilmar lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Hlands 1941, en á námsárum sínum hér heima stund- aöi hann sjómennsku þegar tími gafst til frá náminu °g fékk hann þá þann áhuga á öllu er viðkom sjó- mennsku og útgerð, er entist honum alla ævina. Að viðskiptafræðináminu loknu hélt Hilmar til Bandaríkjanna og lagði stund á vélaverkfræði við University of California og útskrifaðist þaðan að þrem árum liðnum. Þegar heim kom í lok síðari heimstyrjaldarinnar, gerðist Hilmar framkvæmdastjóri hjá Síldarverk- miðjum ríkisins á Siglufirði og gegndi því starfi þar til hann réðst til Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sí> og hélt til Rómar. Tók Hilmar að sér að byggja upp sjávarútvegsdeild FAO og var vettvangur hans á sviði fiskveiða og veiðarfæra. Vann hann að þessum verk- efnum það sem eftir lifði af starfsævi hans, eða í um 30 ár. Er Hilmari þakkað öðrum fremur hversu vel tókst til við að efla fiskveiðar þróunarlandanna, þar sem FAO átti hlut að máli, en hann sá um að skipuleggja og framkvæma mörg þeirra verkefna sem mestum ár- angri hafa skilað á þessum vettvangi. Hilmar var hamhleypa til allra verka og með ólík- indum hversu miklu hann kom í verki og afkastaði. M.a. sem eftir hann liggur er ritverk mikið í þremur bindum sem hann ritstýrði, „Modern Fishing Gear of the World“, gefið út af „Fishing News Books Ltd“ í London, þar sem samansafnað er geysilegum fróðleik um sjávarútveg heims og mun verk þetta verða notað sem uppsláttarrit og heimild um ófyrirsjáanlega framtíð. Ritverkið er að hluta byggt á ráðstefnum sem Hilmar gekkst fyrir að yrðu haldnar og stjórnaði í Hamborg, London og síðast í Reykjavík 1970. Á ráðstefnum þessum mættu hundruð sérfræðinga á sviði sjávarútvegs, hvaðanæva úr heiminum, og miðl- uðu af þekkingu sinni. Eiginkona Hilmars, Anna Ólafsdóttir, lifir mann sinn ásamt þremur uppkomnum börnum þeirra hjóna. Fiskifélag íslands vottar aðstandendum Hilmars Kristjónssonar samúð sína. ÆGIR-561

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.