Ægir - 01.01.1986, Blaðsíða 15
Síðasta áratug hefur rækju- og
skelvinnsla verið byggð upp með
myndarbrag á Skagaströnd, og
skotið digurri stoð undir atvinnu-
lífið. Auk þessa eru nokkrir
smærri bátar á Skagaströnd, líkt
og í öðrum sjávarkauptúnum.
Trillurnar stunda hrognkelsa-
veiðar á vorin, handfæri eða línu-
veiðar á sumrin, og sumar rækju
á öðrum tímum.
Uppbygging útgerðar, fisk-
vinnslu, rækjuvinnslu og skipa-
smíða á Skagaströnd síðan 1970
hefur verið sem vítamínsprauta
fyrir byggðarlagið. Segir frá því
öllu í sérstökum þáttum hér á
eftir.
Frá árinu 1969 fjölgaði íbúum
Flöfðahrepps stöðugt fram til
1982, síðan hefur íbúafjöldinn
verið nokkuð stöðugur. Árið
1983 voru íbúar á Skagaströnd
653, en fæstir 1968, 503. Þessari
miklu aukningu á íbúatölu hefur
fylgt allmikil uppbygging hvers-
lags þjónustugreina. Á árunum
1954-1969 var aðeins byggt eitt
nýtt íbúðarhús á staðnum, en eftir
1974 hafa þau skipt tugum.
Framkvæmdir á vegum sveitarfé-
lagsins hafa einnig verið áber-
andi: Bundið slitlag á flestallar
götur, ný vatnsveita, skólahús
tvöfaldað, nýtt barnaheimili og
íþróttavöllur. Þá hafa verið
byggðar leiguíbúðir á vegum
sveitarfélagsins og einnig íbúðir
á vegum verkamannabústaða.
Uppbygging við höfnina hefur
einnig verið ör þessi ár, enda um
lífsspursmál að ræða fyrir alla
framtíð Skagstrendinga. Höfnin
hefur verið dýpkuð og bætt við
nýjum viðleguköntum. Þá var ný
dráttarbraut tekin í notkun í apríl
á síðasta ári. Er hún í eign
hreppsins, en rekin af skipa-
smíðastöðinni Mánavör hf.
Brautin getur tekið upp báta allt
að 150 rúmlestir að stærð. Kostn-
aður við framkvæmdina var 16-
18 milljónir og greiðir ríkið 60%
af upphæðinni á móti hreppnum.
Höfnin er nú mjög örugg,
nema í verstu suðvestanveðrum.
Þó þarf reglulega að dýpka hana
vegna sandburðar úr Flóanum.
Þá telja heimmenn að næsta
verkefni í höfninni sé að endur-
Afli á Skagaströnd
þús. tonn
10-
byggja aðalhafnargarðinn, svo
hann geti talist fullboðleg haf-
skipabryggja. Er þetta knýjandi
nauðsyn þar sem útflutningur
hefur vaxið mjög hin síðustu árog
svo að skuttogararnir geti báðir
athafnað sig eðlilega í höfninni.
1974-1983
þús. tonn
Súluritin eru gerö af Sigfúsi fónssyni sveitarstjóra á Skagaströnd.
ÆGIR-7