Ægir - 01.01.1986, Blaðsíða 26
Síldarverksmiðjan á
Skagaströnd
Síldarverksmiðja ríkisins á Skagaströnd setur mikinn svip á kauptúnið,
með miklum byggingurp og háum skoráteinum. Verksmiðjan var
byggð á nýsköpunarárunum, þegar áætlanir voru uppi um að gera
Skagaströnd að stórbæ. Hin myndarlega síldarbræðsla átti ekki sístað
vera bakhjarl byggðarinnar.
Sorgarsagan
Verksmiðjan var sett í gang árið
1947 og var brætt í henni töluvert
af síld þá og næsta ár. En úr því
varð erfiðara að finna síldina, og
hvarf hún um síðir algerlega fyrir
Norðurjandi. Hin myndarlegu
verksmiðjuhús horfðu daufum
augum fram í Húnaflóann, næstu
áratugina. Beðið var eftir síldinni
sem ekki kom.
Tvisvar sinnum hefur verið
reynt að koma verksmiðjunni
aftur inn í hringiðu silfursins í haf-
inu. í fyrra sinnið var síld flutt frá
Austfjörðum í stóru flutningaskipi
til bræðslu á Skagaströnd. Þetta
var eftir að fjörkippur komst í síld-
veiðarnar 1960. Ekki hefur þessi
tilhögun þótt nógu hagkvæm. í
annað sinn var farið af stað með
að breyta verksmiðjunni í loðnu-
bræðslu, en ofnar hennar voru
ekki til þeirrar vinnslu fallnir.
Þetta var á árunum 1978-1979
þegar loðnuaflinn var kominn
upp undir eina milljón lesta á ári
og sárlega vantaði vinnslugetu
fyrir Norðurlandi. Tekið var að
rutta til tækjum og endurbæta
húsnæðið. En loðnan hvarf jafn
snögglega og síldin áður, og þar
með varð ekki meira úr því. Hins
vegar býr verksmiðjan nú að
þeim endurbótum sem gerðar
voru á húsnæðinu, þegar enn eru
uppi áform um breytta notkun
verksmiðjunnar á Skagströnd.
Viðhaldi og umgengni í verk-
smiðjunni er líka greinilega sinnt
af samviskusemi, svo tæpast
verður við nokkuð líkt í slíkum
húsum hér á landi.
Besta mjöl sem smakkast getur
Síldarverksmiðjan á Skaga-
strönd hefur hins vegar ekki
staðið verkefnalaus öll þessi ár,
þó svo framleiðslugetan hafi
sjaldan verið fullnýtt. Verk-
smiðjan hefur brætt allan fiskúr-
gang sem til hefur fallið á Skaga-
strönd. Það hefur verið um 1500-
1 700 tonn af úrgangi undanfarin
ár, og framleiðslan um 250-300
tonn af mjöli. Mjölið er allt selt
innanlands til skepnufóðurs,
aðallega í sveitirnar við Húna-
flóa. Bændur fá þar kjarngott
fóður fyrir mun ódýrara verð en
innfluttan fóðurbæti. Þaðvareftir
breytingarnar 1979 sem gæði
mjölsins jukust svo mjög, en áður
var allt flutt út. Á síðasta ári varð
framleiðslan rúm 600 tonn, en
þá varfengið hráefni frá Siglufirði
til viðbótar við það sem féll til á
staðnum.
Tilraun meö kolahræru
Nú í vetur verður gerð athygl-
isverð tilraun í verksmiðjunni á
Skagaströnd. Síldarverksmiðjur
ríkisins ætla þá að reyna nýja teg-
und eldsneytis við bræðsluna.
Það er um að ræða kolahræru eða
kolasalla, (sem enskir kalla coal-
water slurry). Kolahræra er
Bygg'mgar Síldarverksmiðju ríkisins á Skagaströnd rísa eins og miðaldakastali á
höfninni.
18-ÆGIR