Ægir - 01.12.1986, Blaðsíða 13
Það verður að segjast eins og
er, að eftirsjá er hér í Fiskifélaginu
þegar sjóðurinn er lagður niður,
þó ekki væri fyrir annað en það,
að í gegnum störf sjóðsins voru
mikil og góð samskipti við
útgerðarmenn og sjómenn vítt
um landið.
Og svo e.t.v. ekki síður fyrir
það, að í raun og veru átti sjóður-
inn uppruna sinn að nokkru leyti
hér á Fiskiþingi. Upphaf sjóðsins
var samkomulag, sem sjómenn
og útgerðarmenn gerðu með sér
vestur í Bolungarvík árið 1937
um stofnun tryggingasjóðs
fiskimanna.
Aflatryggingamál voru mikið
rædd á Fiskiþingum allt til þess,
að árið 1949 voru samþykkt á
Alþingi lög um Hlutatrygginga-
sjóð.
Aðaltalsmaður þessara mála á
Fiskiþingum var Einar heitinn
Guðfinnsson.
Nú seinustu árin voru starfandi
þrjár deildir við sjóðinn þ.e.
áhafnadeild, verðjöfnunardeild
og almenn deild.
Almenna deildin er sú deild
sem tók við hlutverki „Hluta-
tryggingasjóðs" frá árinu 1949.
Hennar hlutverk var allar götur
frá 1949 til ársins 1984, að bæta
aflahluti skipa og áhafna þegar
um almennan aflabrest var að
ræða.
Með öðrum orðum að gera út-
gerðarmönnum mögulegtaðgera
upp við sína sjómenn i lok vertíð-
ar, þótt gæftir og aflabrögð væru
léleg.
Það var einmitt þetta, sem sjó-
menn og útgerðarmenn í Bolung-
arvík meintu 1937.
Við sem höfum starfað við
sjóðinn teljum að þessi starfsemi
hafi tekist fremur vel og erum
sannfærðir um það, að stundum
hafi bótagreiðsluralmennudeild-
arinnar komið í veg fyrir vand-
ræði og jafnvel byggðaröskun í
einstökum verstöðvum. Trúlega
gætu einhverjirhérinni samþykkt
þetta með okkur.
í greinagerð með frumvarpi um
skiptaverðmæti og greiðslumiðl-
un stendur m.a. að hlutverk al-
mennu deildar hafi breyst eða
jafnvel horfið með nýrri fiskveiði-
stefnu. Eins og hér hefur komið
fram, var aðalverkefni almennu
deildar að hjálpa þegar aflabrest-
ur varð. En eitt er víst, að upp
gætu komið aflabrestir hvað sem
líður fiskveiðistefnu hvers tíma.
Ekki verður fjallað um aðrar
deildir sjóðsins hér, en þess
óskað að breytingarnar á sjóða-
kerfinu takist sem best í fram-
kvæmd.
Góðir þingfulltrúar.
Hér lýkur skýrslu minni um
starfsemi Fiskifélags íslands á
liðnu starfsári. Ég hvet alla til að
kynna sér skýrslur starfsdeilda
félagsins, sem fylgja hér með.
Stjórnarmönnum þakka ég gott
og ánægjulegt samstarf. Fiskifé-
lagsmönnum um land allt og
starfsfólki félagsins þakka ég
ágæta samvinnu og vel unnin
störf.
ÆGIR - 713