Ægir - 01.12.1986, Blaðsíða 23
Nokkur atriði sem bætt
geta öryggi hafna
Fiskideild Vestmannaeyja
leggur til að sett verði reglugerð
um öryggi í höfnum landsins og
öryggisbúnað þeirra.
1. Neyðarstigar verði á öllum
viðleguköntum hafna lands-
ins með í mesta lagi 7 til 10
metra millibili, og tryggt verði
að þeir nái vel niður fyrir stór-
straumsfjöruborð.
Stigar þessir verði auðkenndir
með því að mála þá skærum
litum ennfremur að Ijós verði
sett efst við hvern stiga sem
sést vel úr sjó og gott hand-
fang á bryggjukanti við þá.
2. Alla bryggjukanta og polla
ætti að mála skærum og áber-
andi litum, ennfremur ætti að
auðkenna horn viðlegukanta
t.d. með blikkandi Ijósi, en
það má ekki líkjast stigaljós-
unum. Einnig ætti að hafa
handrið á innhornum máluð í
sama lit.
3. Bryggjukantar ættu að vera
samfelldir og tiltölulega háir
t.d. ekki undir 25-30 cm.
4. Setja þyrfti reglur um lýsingu
hafna.
Greinagerð:
Þar sem ekki virðist vera til
samræmd reglugerð um
öryggi og öryggisbúnað hafna
teljum við að henni verði að
koma á hið fyrsta. Þó margar
bryggjur séu vel upplýstar þá
má segja undantekningalaust
að Ijósastaurar eru aldrei nær
kanti en á miðri þryggju, sem
þýðir að í sjónum næst
bryggju er oftast kolamyrkur.
Ekki ætti að vera erfiðleikum
bundið að lýsa þetta svæði
upp og e.t.v. væri það hægt
að einhverju leyti með stiga-
Ijósunum. Eflaust mundu þau
koma að notum ef maðurfélli
í sjóinn að nóttu til, þá sæi
hann strax hvar næsti stigi
væri og gæti synt að honum.
5. Bjarghringir og Markúsar-
netið ættu að vera á öllum
bryggjum landsins ásamt
krókstjökum. Búnaði þessum
verði komið fyrir með í mesta
lagi 60 metra millibili.
Allir bjarghringjakassar ættu
að vera málaðir þannig að
mynd af bjarghring væri á
þeim ásamt orðinu Bjarg-
hringur, ennfremur þarf að
auðkenna Markúsarnetið sér-
staklega.
6. í öllum höfnum landsins ætti
að vera tæki til að gefa súrefni
og blása lífi í menn.
Þessi tæki mættu vera staðsett
í hafnarbílum þarsem þeireru
fyrir hendi, í húsakynnum
hafnarvarða eða hafnar-
vigtum og í framhaldi af þessu
væri nauðsynlegt að kenna
öllum þeim sem sjá um hafnir
meðferð þessaratækja. Einnig
væri æskilegt að starfsmenn
hafna sæktu námskeið í
skyndihjálp.
7. Allar hafnir landsins ættu að
eiga nokkra landganga fyrir
þau skip sem þangað koma.
8. Aðeins örfá skip eiga
almennilega landganga og
margir skipstjórar segja að
ekki sé neitt pláss fyrir þá um
borð í skipum þeirra, því noti
þeir sem þá eiga eingöngu í
heimahöfn þar sem þeir eru
geymdir milli veiðiferða.
Lausn á þessu væri að hafn-
irnar sjálfar ættu þessa land-
ganga og gætu lánað skip-
unum þá þegar þau væru í
höfn. Með þessu mundu land-
gangarnir nýtast mun beturog
fleirum.
9. Það er staðreynd að gæsla við
hafnir landsins hefur farið
minnkandi á undanförnum
árum, í það minnsta er það
svo hér í Vestmannaeyjum.
Þessu þarf að breyta þannig
að gæsla verði stóraukin.
Hér í Vestmannaeyjum
drukknuðu fjórar manneskjur
í höfninni frá sjómannadegi til
sjómannadags síðastliðinn,
og vitað er að þrem mönnum
var bjargað um miðja nótt upp
ÆGIR - 723