Ægir - 01.12.1986, Blaðsíða 25
hún því til sjómanna að þeir not-
færi sér þau.
10. Fiskideild Vestmannaeyja
fagnar framkomnum reglum Sigl-
ingamálastofnunar um skipulag
áhafnar í neyðartilfellum um
borð í skipum.
Öryggismálaskóli S. V. F. I.
Fiskideildin í Vestmannaeyjum
fer þess á leit, að Fiskiþing og
stjórn Fiskifélags Islands knýi á
um að nægjanlegt fjármagn verði
tryggt til rekstrar Öryggismála-
skóla Slysavarnafélagsins.
Fiskideild í Vestmanna-
eyjum gerir tillögu um að
athuguð verði mengunarhætta af
völdum asbests sem notað er í
skipum sem einangrun utanum
pústkerfi og fleira. Fiskiþing og
stjórn Fiskifélags íslands sjái um
að koma þessari tillögu á fram-
færi við rétta aðila og fylgist með
að hún verði framkvæmd.
Einnigað niðurstöðurathugun-
arinnar verði kynntar, t.d. í Ægi
eða öðruni fjölmiðlum.
Frá Farmanna- og
fiskimannasambandi Islands
F.F.S.Í. vill eindregið taka
undir með Vestmannaeyingum
um að hvergi verði slakað á í upp-
byggingu Slysavarnaskóla sjó-
manna sem er að komast á fastan
grunn undir forystu Slysavarna-
félags íslands. Um 900 sjómenn
hafa þegar notið þessarar
fræðslu, öllum til mikils gagns.
Þessi fjöldi er um það bil Ve af
öllum sjómönnum. Það verður
að sjá til þess að þessi öryggis-
fræðsla haldi áfram af fullum
krafti, betri fjárfestingu fáum við
varla tækifæri til að beina fjárveit-
ingum í en til slysavarnarmála og
ekki síst þar sem slysin eru flest
eins og í sjómannsstörfum.
Öryggismálin eru enn sem fyrr
mikið í umfjöllun og vinnslu. Á
vordögum beittu fulltrúar sjó-
manna sér fyrir því að fé kæmi til
öryggismála úr tryggingasjóði
fiskiskipa um leið og hann yrði
lagður niður við uppstokkun á
sjóðakerfi sjávarútvegsins.
Með góðum stuðningi fulltrúa
L.Í.Ú. og alþingismanna fengust
12 milljónir teknar frá í öryggis-
niálin. Nú nýlega ráðstafaði Hall-
dór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra 8 milljónum kr. til Slysa-
varnarfélags íslands til áfram-
haldandi þjálfunar sjómanna og
uppbyggingar Slysavarnaskóla.
Tvær milljónir kr. voru settar í
ýmis önnur mál sem Öryggis-
málanefnd sjómanna hefur lagt
til. Ríkisvaldið virðist hinsvegar
ætla að draga all verulega úr fjár-
veitinguni til öryggismála sjó-
manna af t'járlögum og þurfum
við þar að koma inn með þrýsting
á fjárveitinganefnd.
Siglingamálastofnun hefur
verið að hrinda í framkvæmd
ýmsum góðum niálum í örygg-
ismálaflokkum og undir forystu
siglingamálastjóra Magnúsar
jóhannessonar. Má þar meðal
annars nefna reglur um bruna-
varnarkerfi í skipum, könnun á
stöðugleika fiskiskipa og leið-
beiningarblaði með sérneyðar-
áætlun fyrir hvert skip yfir 100 brl.
Bylting hefur átt sér stað í
möguleikum sjómanna til þessað
hafa samband við fjölskyIdur
sínar og nána samstarfsmenn í
landi með tilkomu farsímans.
Farsíminn leysir þó ekki öryggis-
þáttinn í viðskiptum við land né
við önnur skip. Farsíminn er ein-
göngu gott tæki til þess að létta á
strandstöðvum því mikla álagi
sem orðið var víða í radíóvið-
skiptum við strandstöðvarnar.
Fyrirhugað er nefndarstarf um
framtíðarfyrirkomulag loftvið-
skipta.
Eigi verður annað sagt en að
ennþá séu mikil umsvif í umræðu
og athöfnum í öryggismálunum.
Rétt væri að halda samskonar
ráðstefnu á næsta ári um örygg-
ismál og gert var 21 .-22. septem-
ber 1984 og sjá hvað hefur áunn-
ist og hvar þurfi við að bæta í
öryggismálum og tel ég rétt að við
beinum því til Alþingis að slaka
hvergi á í stuðningi við öflugt
fyrirbyggjandi starf í öryggis-
málum sjómanna.
EimSalt Ífc
Hvaleyrarbraut • Hafnarfiröi • Sími 52166
ÆGIR- 725