Ægir - 01.12.1986, Qupperneq 24
úr höfninni og má segja að í
tveimur tilfella hafi mönnum
verið bjargað fyrir algjöra til-
viljun.
Sem sagt meiri gæsla, meira
öryggi.
10. Æskilegt væri að léttbátur
væri til taks í öllum höfnum
landsins sem hægt væri að
grípa til í neyðartilfellum.
Frá Norölendingum
Að Flateyjarhöfn á Skjálfanda
verði hreinsuð. Það skal tekið
fram, að þessi höfn getur verið líf-
höfn fyrir báta á norðaustanverðu
landinu.
Frá Vestlendingum
Fiskiþing varar hið opinbera
við fjársvelti vegna hafnarmann-
virkja.
Frá Sunnlendingum
a) Fjórðungsþing Sunnlend-
inga telur brýna nauðsyn á að
fjárveitingar til hafna verði stór-
auknar, og leggur til við stjórn
þessara mála að Ijúka þeim fram-
kvæmdum sem hefir verið byrjað
á ásamt nauðsynlegu viðhaldi.
í framhaldi af þessu má vekja
athygli á að öryggismálum í
höfnum landsins er stórlega ábóta-
vant, og hefur SVFI meðal annars
vakið athygli á því. Fjórðungs-
þingið bendir á að nauðsyn er
fyrir þjóð sem byggir allt á fisk-
veiðum að eiga nothæft dýpkun-
arskip til þjónustu við hafnir
landsins.
b) Fjórðungsþingið bendir
stjórn Fiskifélagsins á að Gerða-
höfn getur verið lífhöfn fyrir
smærri báta ef lagfæring á mann-
virkjum færi fram, og nýttust þá
betur fyrir minni báta er sækja
sjó frá höfnum við Faxaflóa.
Á síðustu árum hafa fjárveit-
ingar til hafnarmála dregist
saman og er nú komið í algjört
óefni víða í hafnarmálum.
Sjókortagerð og sjómælingar
46. Fjórðungsþing Fiskideild-
anna á Vestfjörðum, haldið á ísa-
firði 18. október 1986 óskar eftir
endurskipulagningu á sjókorta-
gerð og eflingu sjómælinga við
Island. Með nútímatækni má
endurbæta kortagerðina til muna
og hafa ávallt fyrirliggjandi góð
fiskikort með nýjustu upplýs-
ingum um festur og þess háttar.
Þingið telur að réttur aðili til að
annast slíka kortagerð og afla
upplýsingar til hennar sé Fiskifé-
lag íslands. Jafnframt er rétt að
stuðla að því að upplýsingar af
sjókortum og fiskikortum séu
færðar inn á forrit (snældur) til
notkunar á nútíma staðsetningar-
tækjum. Þess er einnig óskað að
aftur verði prentuð inn á sjókort
Loran C keðju 7970 (þ.e. 46 þús.
og 62 þús.) og einnig að kortin
verði gefin út í stærri mælikvarða.
Fiskideild Vestmannaeyja vill
enn og aftur ítreka þá tillögu sína
frá 1982 og aftur 1983 sem sam-
þykkt var á Fiskiþingi um að sett
verði í sjókort grynningar og sker
við Maríuhlið ca 10 sjóm. vestan
við Dyrhólaey svo koma megi í
veg fyrir fleiri slys.
Fiskideild Vestmannaeyja lýsir
furðu sinni á því að þetta skuli
ekki enn hafa verið sett inn í
sjókort.
Öryggismál hafna
Frá Vestmannaeyjum
1. Mörg dauðaslys á sjó verða
með þeim hætti að sjómenn falla
útbyrðis og drukkna eða krókna
úr kulda áður en til þeirra næst.
Til að reyna að fækka dauðaslys-
um af þessum orsökum t.d. á
loðnubátum ætti að skylda menn
til að vera í sjálfvirkum björgun-
arbeltum, sérstaklega þá sem
vinna í nótakassa ogskutrennum.
Best væri að skylda alla sjómenn
sem vinna ofandekks til að vera í
slíkum beltum, þessi belti munu
vera notuð um borð í nokkrum
skuttogurum.
2. Nú á allra síðustu árum
hafa nokkrir framsýnir útgerðar-
menn sett stiga utan á skip sín til
að auðvelda að komast upp í þau.
Eykur þetta mjög öryggi manna
sem um borð eru að fara eða frá
borði. Á nokkrum skipum hefur
þessi stigi verið látinn ná niður
fyrir sjólínu og þannig opnuð leið
fyrir menn sem detta í sjóinn að
komast upp í skipið, hvort heldur
er í höfnum eða úti á rúmsjó. Sé
skipið með kafara um borð getur
hann notað þennan stiga.
3. Fiskideild Vestmannaeyja
fagnar þeim skyndiskoðunum
sem Siglingamálastofnun og
Landhelgisgæsla hafa gert á
undanförnu ári, en telur að þær
eigi að vera miklu fleiri og víð-
tækari. Skyndiskoðanir ætti að
gera á öllum þeim stöðum þar
sem Siglingamálastofnun hefur
starfandi skipaskoðunarmenn,
það ætti ekki að vera mjög kostn-
aðarsamt fyrir stofnunina.
6. Fiskideild Vestmannaeyja
leggur til við Siglingamálastjóra
ríkisins að sett verði í reglugerð,
að allir opnir bátar og B-bátar
landsins verði skyldaðir að mála
með sjálflýsandi málningu efsta
fetið á borðstokk báta og/eða stýr-
ishúsi og ef byggt er yfir stefni
þeirra.
Eins að skylt verði að hafa
radarendurvarp á þessum bátum.
7. Fiskideild Vestmannaeyja
fagnar útkomu sérrita Siglinga-
málastofnunar ríkisins nú síðast
um „Björgun úr köldum sjó" og
væntir áframhaldandi útgáfu
þeirra, deildin er sannfærð um að
þau skili tilætluðum árangri.
8. Fiskideild Vestmannaeyja
fagnar einnig tilkomu öryggis-
málanámskeiða SVFÍ og vill
koma á framfæri þakklæti til Slysa-
varnafélagsins. Jafnframt beinir
724 -ÆGIR