Ægir

Årgang

Ægir - 01.12.1986, Side 28

Ægir - 01.12.1986, Side 28
núverandi aðstæður er ódýrara að keyra Ijósavélar heldur en taka landrafmagn. í þessari athugun LÍÚ og SÍR kom í Ijós að gjaldskrár hafna geta verið mjög mismunandi, sem þyrfti að athuga nánar. En hver skyldi þessi raforkukostnað- ur vera til stóriðjunnar og annarra kaupenda raforku? Samkvæmt upplýsingum, sem ég hef aflað mér þá greiðir Álverið í Straums- vík um 52 aura fyrir kílówatt- stundina og Járnblendiverk- smiðjan við Grundartanga greiðir aðeins 27 aura fyrir kílówatt- stundina. Til frekari samanburðar má geta þess að almenningsveit- urnar, sem kaupa raforku í heild- sölu af Landsvirkjun greiða 1,25 kr. fyrir kílówattstundina. Hér er því enginn smámismunur á þeim kjörum, sem einstakir kaupendur njóta. Eflaust eru réttmætar skýringar á því að eðlilegt sé að einhver mismunureigi að vera milli aðila. Við þekkjum sum rök fyrir því úr daglegri umræðu, svo sem að hér sé um stóra aðila að ræða, taka verði mið af heimsmarkaðsverði í orkuverði til iðjuveranna ogþau nýti orkuna betur en aðrir aðilar í þjóðfélaginu. Það er engin ástæða til að véfengja slík rök sérstak- lega. í þessu sambandi má t.d. nefna að ef Álverið sæti við sama borð og almenningsveiturnar, þá myndi verð til þess vera um 26% lægra en til almenningsveitn- anna, einmitt vegna betri nýting- ar á raforkunni. Á móti kemur samt sem áður sú spurning, hvort eðlilegt sé að þessi raforkuverð- munur sé eins mikill og raun ber vitni t.d. er hvorki meira né minna en um 930% munur á því verði sem Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga greiðir og því verði, sem sjávarútvegsfyrirtækin greiða að meðaltali. Þetta er hér sett fram ti I þess að gefa vísbendingu um hversu orku- taxtinn spannar breytt verðbil. Jafnframt undirstrikar þessi verð- m u n u r m i ki I vægi þess að orkutaxt- ar, sem nú eru í gildi verði teknir til endurskoðunar og þeir leið- réttir þannig að í þeim endur- speglist hagur.allra, en ekki fárra. Til þess að þetta nái fram að ganga þarf sjávarútvegurinn að þrýsta á stjórnvöld uni breytingar og krefja þau um endurskoðun þessara mála, þannig að réttlátari kostnaðarskipting fáist. í nefndarál iti iðnaðarráðu- neytsins kemur einnig fram að raforka til húshitunar hækki raforkutil iðnaðar ogfiskvinnslu. Á sama tíma er orkan seld frá Landsvirkjun á 30% hærra verði umfram kostnaðarverð. Hérerað sjálfsögðu mál, sem stjórnvöld verða að leysa. Það getur ekki verið hlutverk atvinnulífsins að bera þennan kostnað; Landsvirkj- un verður allt eins að taka það á sig. En hér er enn eitt dæmið um misræmið sem er í verðlagningu raforkunar. Árið 1982 voru afnumdar verð- lagshömlur á Landsvirkjun, og síðan hefur stjórn fyrirtækisins ákveðið verð til almenningsraf- veitna með tilliti til arðgjafar og að fenginni umsögn Þjóðhags- stofnunar. Þetta upplýsir Jóhannes Norðdal Seðlabanka- stjóri í skýrslu, sem hann flutti á aðalfundi Landsvirkjunar á þessu ári. Þetta hefur nú leitt m.a. til betri afkomu fyrirtækisins og skil- aði það í hreinan hagnað um 253 milljónum króna árið 1985. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að orkufyrirtækin í landinu sýni góða afkomu. Enda kom það fram í ræðu Seðlabankastjóra að batnandi afkoma Landsvirkjunar myndi skila sér í lækkandi raf- orkuverði á næstu árum. í ræðu sinni sagði Seðlabankastjóri m.a. að til þess að nýta bætta afkomu komi einkum þrennt til greina: í fyrsta lagi lækkun raforkuverðs til almennings, í öðru lagi endur- greiðslur erlendra skulda og bætt efnahagsstaða Landsvirkjunar þar með, og í þriðja lagi að greiða eignaraðilum arð. í þessu sambandi tiltók hann tvö dæmi. í fyrra dæminu reikn- aði hann með 5-6% arðgjöf eigin- fjár að meðaltali, sem nægir til þess að hægt sé að greiða niður allar skuldir fyrirtækisins á næstu fimmtán árum, þrátt fyrir svigrúm til að lækka raunverð raforku til almennings um 3% að meðaltali á ári þannig að það verði um aldamótin um þriðjungi lægraen í dag. Auk þess að greiða eig- endum arð er nemi 6% af endur- metnu stofnframlagi á ári. í öðru dæmi, sem Seðlabanka- stjóri gat um kom fram aðef meg- ináhersla yrði lögð á lækkun raf- orkuverðs, t.d. 5% lækkun á ári, myndi lækkun jafngilda rúmlega helmings lækkun á raunverði á orku til aldamóta, en mun minna svigrúm yrði til að bæta eiginfjár- stöðu fyrirtækisins. í þessu dæmi gat Seðlabankastjóri þess að miðað við þetta dæmi yrði arð- gjöf um 3% að meðaltali, en þó væri svigrúm tii þess að lækka hlutfall skulda af heildareignum úr tveimur þriðju í einn þriðja. Þessi dæmi Seðlabankastjóra eru einmitt talandi dæmi um málefni, þar sem atvinnulífið á að beita áhrifum sínum til að hafa áhrif á verðlagningu raforku í landinu. Er eðlilegt að Landsvirkjun verði skuldlaust fyrirtæki um næstu aldamót þ.e. eftir fjórtán ár? Jafn- framt eru þessi dæmi ágætis sýn- ishorn um það hversu marg- háttuð og flókin umræða um verðlagsmál raforku er, og ég gat um í upphafi máls míns. Það nægir ekki að einblína á raforku- taxtana, heldurverðuraðtengjast umræðunni niðurgreiðslur lána, 728 - ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.