Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1986, Page 43

Ægir - 01.12.1986, Page 43
Tillögum vísað til stjórnar Fiskifélagsins 45. Fiskiþing samþykkir að vísa eftirtöldum til- lögum fjórðungsþinga til stjórnar Fiskifélagsins, sem leiti umsagnar Hafrannsóknastofnunar. 1. Tillögu um friðunarsvæði við Hrollaugseyjar og tveimur tillögum um friðunarsvæði á Selvogs- banka. 2. Tillögu um breytingu á fiskveiðilandhelgi vegna togveiða austur af Hvítingum. 3. Tillögu um togveiðiheimildir við Vestfirði. 4. Tillögu um framkvæmd á lokun svæða vegna smáfisks. 5. Tillögu um uppbyggingu hrygningarstofnsins. Kynningarstörf 45. Fiskiþing mælir með aukinni kynningu á mál- efnum sjávarútvegsins í fjölmiðlum, svo sem föstum kynningar-og/eðafræðsluþáttum í ríkisfjölmiðlum. Humarveiðar 45. Fiskiþing leggur til að auknum humarkvóta verði skipt jafnt milli þeirra báta sem veiðarnar stunda. Rækjuveiðar 45. Fiskiþing leggur til að rækjuveiðar sóknar- marksskipa teljisttil sóknardaga á tímabilinu 1. maí til 1. október. Þingfararkaup Fiskiþing samþykkir að launagreiðslur þingfull- trúafalli niðurá45. Fiskiþingi. Dvalarkostnaður þeirra utanbæjarmanna sem fara heim daglega, sé kr. 1.350.- en dvalarkostn- aður þeirra sem gista hér í borginni sé kr. 2.500.- á dag. Skýrsla fiskimálastjóra 45. Fiskiþing færir fiskimálastjóra þakkir fyrir góðar og skilmerkilegar skýringar á starfsemi og rekstri Fiskifélagsins. Jafnframt færir þingið starfsfólki bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Mál sem vísað er til stjórnar Fiskifélagsins 45. Fiskiþing telur að þeim málum sem vísað ertil stjórnar Fiskifélagsins verði aðfylgjaeftirog láta við- komandi aðila sem málin snerta fylgjast með gangi þeirra á milli þinga. Staðgreiðslukerfi skatta 45. Fiskiþing skorar á stjórnvöld að vinna mark- visst að því að upp verði tekið staðgreiðslukerfi skatta. Framtíð Útvegsbanka íslands 45. Fiskiþing skorar á stjórnmálamenn og banka- yfirvöld að ákveðaframtíð Útvegsbanka íslandssem allra fyrst, og verði fullt tillit tekið til þeirra sjávarút- vegsfyrirtækja sem nú skipta við Útvegsbankann. Handbók fyrir sjófarendur 45. Fiskiþing skorar á Sjómælingar íslands, að gefa nú þegar út Handbók fyrir sjófarendur, sem þar mun til í handriti. Reikningar Fiskifélags íslands Við umfjöllun reikninga Fiskifélags íslands fyrir árið 1985 fékk nefndin á fund sinn Óskar Kristjáns- son, fulltrúa og Þorstein Gíslason, fiskimálastjóra. Útskýrðir voru einstakir liðir reikninganna og rætt um horfur á þessu ári og fjárhagsáætlun næsta árs vegna fyrirsjáanlegra breytinga tekju- og gjaldaliða vegna niðurfellingar sjóðakerfis sjávarútvegsins. Nefndin bendir á eftirfarandi: a) Við ítrekum ábendingar frá síðasta Fiskiþingi um: að með reikningum Fiskifélagsins verði jafnan birtar samanburðartölur frá fyrra ári. Að samningar um þjónustu á vegum Fiskifélagsins verði frágengnir frá ári til árs og reikningar fyrir útselda þjónustu verði gerðirekki sjaldnaren mán- aðarlega. b) Nefndin hefur kynnt sér fjárhagsáætlun 1987 og telur að tekjutapi vegna sjóðakerfisbreytingarinnar hafi að mestu verið mætt með skipulagsbreytingum. Nefndin leggur til að reikningar Fiskifélags íslands fyrir árið 1985 verði samþykktir. ÆGIR - 743

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.