Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1992, Qupperneq 48

Ægir - 01.01.1992, Qupperneq 48
40 ÆGIR 1/92 Vilhelmína Vilhelmsdóttir og dr. Jakob Magnússon: Búrfiskur Er hér um áhugaverða nýja tegund fyrir fiskveiðar okkar að ræða? Á árinu 1991 var búrfiskur (Hoplostethus atlanticus’) mjög til umræðu, þegar af honum veidd- ust nokkur tonn í fyrsta sinn hér við land. Búrfiskurinn er þó engan veginn ný tegund við landið. En fram til þess tíma höfðu aðeins veiðst einstaka fiskar og tegundin því talin með sjáldséðum fiskum hér við land. Búrfiskur veiddist í fyrsta sinn við ísland svo vitað sé, í Öræfagrunnshallanum árið 1949. Síðan þá hafa fengist all margir fiskar undan Suð-vestur og Suðurströndinni allt niður á um 1100 m dýpi. Þegar b/v Klakkur frá Vestmanna- eyjum landaði búrfiski í tonna tali ') Hoplostethus atlanticus og Hoplost- ethus islandicus er sama tegundin. (t.d. 40 tonnum í október 1991) var það kannski ekki fyrst og fremst sú staðreynd, að farið var að veiða „sjaldgæfan" fisk í tonna tali, heldur hitt að hann reyndist í háum gæðaflokki og fyrir hann fékkst gott verð á markaði erlend- is. Hingað til, er það aðeins þessi eini togari, eftir því sem best er vitað, sem hefur veitt þennan fisk á mög takmörkuðu svæði. Spurn- ingin sem vaknar er auðvitað sú, hvort það séu önnur svæði við ísland þar sem búrfiskur safnast saman, og þá í hve miklum mæli? Það verður vikið að þessu seinna í greininni, en fyrst er rétt að líta á hinar miklu búrfiskveiðar við Nýja-Sjáland og Ástralíu. Veiðar í Kyrrahafi í upphafi áttunda áratugarins lönduðu nýsjálenskir togarar árlega nokkrum hundruðum tonna af búrfiski sem aukaafla við aðrar veiðar. En það var ekki fyrr en í upphafi níunda áratugarins að þessi tegund varð verulega áhuga- verð fyrir fiskveiðar þeirra. Það var árið 1982 að tveir fyrrverandi breskir frystitogarar tilkynntu um 60-70 tonna dagveiði af búrfiski á 500—560 fm dýpi. Þegar árið eftir var búrfiskurinn orðin ein af aðaltegundunum í fiskveiðum Nýsjálendinga og ársaflinn jókst hratt. Árið 1986 var hann t.d. orð- inn 47000 tonn. Búrfiskveiðarnar voru m.a. kallaðar „gullnáman í fiskiðnaði Nýja-Sjálands". Árið 1987 var búrfiskurinn orðinn mikilvægasta fisktegundin í útflutningi Nýja-Sjálands (97 millj. dollarar).
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.