Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1992, Side 49

Ægir - 01.01.1992, Side 49
1/92 Það var þegar árið 1985 ákveð- inn hámarksafli í varúðarskyni sem nam 46000 tonna ársafla fyrir árin 1985 og 1986. Þessi há- marksafli var fljótlega aukinn um 13.000 tonn, í 59000 tonn fyrir 1987. En þá þegar var farið að bera á minnkandi afla. Árið 1989 var ársaflinn kominn niður í 41000 tonn og hámarksafli fyrir árin 1990/1991 var ákveðinn um 24000 tonn. Ástralir hófu veiðar á búrfiski árið 1982 í kjölfar þess að rann- sóknaskipið „Challenger" fékk álitlega veiði í desember 1981. Þangað til höfðu þeir flutt inn búr- fisk frá Nýja-Sjálandi. En veru* legur skriður kom ekki á veiðar Ástralíumanna fyrr en 1986 eftir að búrfisksvæði fundust undan Norðvesturströnd Tasmaníu. I kjölfarið fundust nokkur fleiri veiðisvæði undan norðaustur og suðvestur Tasmaníu og í Stóraflóa. Ársaflinn jókst úr 400 tonnum fyrir 1986 í 4600 tonn árið 1986. Árið 1988 var ársaflinn kominn í 6400 tonn. í apríl 1989 fundust stór hrygningasvæði austur af Tasm- aníu og ársaflinn 1989 rauk upp í 36000 tonn. Þar með varð búrfisk- urinn mikilvægasti bolfiskur Astralíu. Af reynslu Nýsjálendinga var Ijóst, að stjórnun veiðanna væri nauðsynleg. Hrygningasvæð- 'nu var lokað fyrir veiðum tíma- bundið frá ágúst 1989 til apríl 1990. Leyfður hámarksafli var settur 31000 tonn fyrir 1990 og lækkaður niður í 24000 tonn fyrir árið 1991. Uppgötvun hrygningasvæðanna 1989 A af Tasmaníu breytti eðli áströlsku búrfiskveiðanna. Þangað til höfðu veiðar Ástrala byggst á toörgum minni svæðum þar sem búrfiskur safnaðist saman að sumar- og haustlagi. Nýsjálend- lngar veiddu hinsvegar búrfiskinn aðallega á veturna þegar hann hafði safnast saman til hrygningar. Það var líka auðveldara að áætla ÆGIR_________________ veiðina því gotstöðvarnar eru þær sömu í svæði og tíma ár eftir ár. Öðru máli gegnir með smábletti hér og þar, þar sem fiskur safnast saman annað slagið og ekki ávallt á vísan að róa. Rannsóknir í Kyrrahafi Rannsóknir á búrfiski hófust löngu áður en farið var að veiða hann í stórum stíl. Framlag til þeirra var stóraukið þegar veiðar hófust fyrir alvöru og voru studdar af fiskiðnaðinum, sem hafði aug- Ijósra hagsmuna að gæta í að við- halda þessum mikilvæga stofni. Ástralíumenn nutu góðs af rann- sóknum Nýsjálendinga sem voru vel á veg komnar þegar Ástralir tóku til við rannsóknir af fullum krafti árið 1987. Var áríðandi að meta stærð búrfisksstofnsins við Ástralíu til þess að geta ákveðið hámarksafla fyrir veiðarnar sem byggður væri á þekkingu á líffræði tegundarinnar, vaxtarhraða og aldri, nýliðun o.s.frv. Rannsóknir á búrfiski virðast vera sérstaklega erfiðar. Það hefur t.d. ekki náðst nein eining um aldurinn. Ýmsar aðferðir til að greina aldur hafa verið reyndar, en engin þeirra hefur verið sannreynd ennþá. Við ákvörðun leyfislegs hámarksafla hafa Nýsjálendingar gert ráð fyrir náttúrulegum dauða og stuðst við stofnmat byggt á rannsóknatogum en óháð veiðum. Ástralíumenn kusu heldur að fara eftir bergmáls- mælingum og mati á eggjafjölda. Þau fjölmörgu vandamál, sem tengjast þessum aðferðum urðu ekki yfirunnin í einu vetvangi. Þannig var t.d. endurvarpsstuðull búrfisks óviss, því fiskinn vantar loftfylltan sundmaga. Daglega framleiðslu eggja var ekki hægt að meta, því þróunarstig þeirra voru ekki þekkt. Tillögur, sem studdust við þessar rannsóknir, þ.e. um 3000 tonna hámarksafla voru því vafasamar, en bentu þó til þess að 41 fyrri tölur um leyfilegan hámarks- afla væru örugglega of háar. Fiskifræðingar í báðum löndunum komust að þeirri niðurstöðu, að búrfiskur virðist vera hægvaxta, lifa lengi, hafa litla framleiðni eggja og þar af leiðandi slaka nýliðun. Þess vegna er þessari tegund stórhætt við ofveiði. Það var brýnt að setja á hámarksafla þótt hann væri meira og minna byggður á til- gátum, til þess að vernda stofninn. Menn voru sammála um að á meðan að ekki lægi fyrir áreiðan- legt mat á stofnstærð yrðu veið- arnar að hlýta strangri stjórnun eins og t.d. tímabundinni lokun hrygningasvæða. Það myndi vera betra en að skaða þessa auðlind, til lengri tíma litið. Margvísleg vandamál önnur en líffræðileg risu, þegar hinn mikli óvænti búrfiskafli barst á land. Fiskur fór í súginn, lélegri gæði, lægra verð, vinnslustöðvar voru of fáar og kæli- og frystigeymslur ekki nægjanlegar. Á öllum þessum vandamálum þurfti einnig að taka. Eitt skrefið í að leysa þessi vandamál var að breyta kvótakerfi með því að leyfa framsal kvóta. Samantekt á líffræðilegum upplýsingum Síðastliðin 10-15 ár hefur miklum gögnum um búrfisk verið safnað á hafsvæðunum við Nýja- Sjáland og Ástralíu. Þessi tegund er algeng í landgrunnshallanum á ca 700-1200 m dýpi en hann er þéttastur í um 900 m dýpi á þeim slóðum. Sjávarhitinn þar sem búrfiskurinn veiðist er 4-9°C við Ástralíu en 4-6°C við Nýja- Sjáland. Enda þótt almennt megi segja að þúrfiskur safnist einkum saman í neðansjávarfjalllendi, þá er hann þéttastan að finna utan í stökum tindum sem geta stundum risið hundruð metra upp frá ca 1000 metra dýpi. Flatarmál slíkra svæða er oft frekar takmarkað.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.