Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Blaðsíða 6

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Blaðsíða 6
220 Tímarit lögfræðinga til Alþingis. Þetta hefur þau áhrif, að hæstaréttardómarar og aðrir þeir dómendur, sem ekki eru taldir hafa umboðs- störf á hendi, eru kjörgengir við kosningar um forseta, þótt þeir séu ekki kjörgengir til Alþingis, sbr. 34. gr. stjskr. Óheimilt er að bæta fleiri kjörgengisskilyrðum við. T. d. mundi vist manns í fangelsi ekki varna kjörgengi hans við forsetakosningar, ef hann engu að síður yrði talinn hafa óflekkað mannorð. Vitanleg og alkunn veikindi, er gerðu forsetaefni ómögulegt að gegna störfum, ef hann yrði kosinn, svo sem t. d. alþekkt geðveiki, mundu og ekki svipta hann kjörgengi, ef önnur skilyrði væru fyrir hendi. b. Nú er ágreiningur um kjörgengi forsetaefnis, og sker þá hæstiréttur úr, sbr. 11. gr. laga nr. 36 1945. Eftir staðsetningu þessa ákvæðis í lögunum lægi næst að ætla, að hæstiréttur skæri úr þessu samtímis því, sem hann lýsir kosningaúrslitum. Er sjálfsagt ekki loku fyrir það skotið, að þangað til geti ágxæiningur, er úi'skurða þurfi, risið út af þessu, en eftir það tjáir ekki að taka slíkt upp. Eðli málsins samkvæmt virðist hinsvegar ekkei't því til fyrirstöðu, að hægt væri að krefjast slíks úi-skurðar og fá hann kveðinn upp jafnskjótt og fi'amboðsfrestur er lið- inn. Er lang-eðlilegast, að sá háttur sé hafður á, ef til ágreinings kemur. 3. Forsetaefni ber að hafa meðmælendur með framboði sínu. Um fjölda þeirra segir í 5. gr. stjskr., að þeir megi ekki vera færri en 1500 kosningabærra manna og ekki fleiri en 3000. 1 sömu gr. er heimilað að ákveða með lög- um, að tiltekin tala meðmælenda skuli vei'a úr landsfjórð- ungi hvei'jum í hlutfalli við kjósendatölu þar. Þessari heimild er beitt í 3. gr. laga nr. 36 1945, þar sem segir, að forsætisráðherra tiltaki hámarks og lág- markstölu meðmælenda forsetaefnis úr landsfjórðungi hverjum í réttu hlutfalli við kjósendatölu þar. Ber því að láta í-eikna þetta hlutfall út hverju sinni, þegar efnt er til forsetakjörs og ákveða hámark og lágmark meðmæl- enda úr landsfjórðungi hvei'jum samkvæmt því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.