Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Blaðsíða 35
Frd hæstarétti janúar—júní 1951
249
nr. 20/1923. Var kaupmálinn því gildur hjónanna milli,
en um gildi hans gagnvart lánadrottnum þeirra kom
ekki til álita í málinu. Með kaupmálanum voru allar eignir
félagsbús þeirra (húseign, bifreið, verðbréf og innan-
stokksmunir), samtals um 88000 kr. virði, húseignin þar
í með fasteignamatsverði, gerðar séreign K, nema rúmlega
26000 kr. sparisjóðsinnstæða. Sama dag gerðu þau hjón
sameiginlega og gagnkvæma erfðaskrá. Samkvæmt henni
átti S að erfa allar eftirlátnar eignir K, ef hann lifði henni
lengur, en ef K lifði honum lengur, þá skyldi hún, auk
lögarfs, erfa ty. hluta af eftirlátnum eignum S. Sam-
kvæmt erfðaskránni hefði þá dóttir S erf113°.°° x 9, eða rúm-
lb
ar 7300 kr. af eignum föður síns.
Af hálfu Ó dóttur S var því haldið fram, að ákvæði
kaupmálans um yfirfærslu eigna félagsbúsins, hefði, að því
leyti sem hluta S í því varðaði, í raun réttri falið í sér
dánargjöf samkvæmt 25. gr. erfðatilsk. 25. september 1850
(og nú 32. gr. 1. 42/1949) eða hana yrði að meta sem svo
væri. S hefði gengio með ólæknanlegan sjúkdóm, og hefði
hann sjálfur hlotið að vita það, sjúkdóm, sem leitt gæti
hann til dauða svo að segja á hverri stundu. Gjafir gefnar,
þegar svo er ástatt, verði að meta eftir ákvæðum laga um
dánargjafir. Tveir af fimm dómurum hæstaréttar litu og
þannig á málið. Þeir segja, að engin sennileg skýring hafi
komið fram á því, að næstum allar eignir hjónanna eru
gerðar séreign K, önnur en sú, að S hafi með kaupmálan-
um ætlað að tryggja K allan arf að heita mátti eftir sig,
og telja því, að hér hafi verið um gjöf að tefla, sem 25. gr.
erfðatilskipunarinnar taki til. Þar sem dóttir S sé skyldu-
erfingi eftir hann, þá verði að meta ráðstöfunma ógilda
gagnvart henni.
Það sýnist áreiðanlegt að tilgangur hjónanna með kaup-
mála þessum hafi verið sá, er minni hlutinn telur, með
því að S hefur naumast getað efast um það, að hann ætti
allskammt eftir ólifað, þegar kaupmálinn var gerður. Til-
gangurinn með lcaupmálanum er sýnilega að svipta dótt-
17