Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Blaðsíða 24

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Blaðsíða 24
238 Tímarit lögfrxSinga dómi. Meiri hluti hæstaréttar segir aðilja að vísu bundna við yfirlýsingu sína um lok gagnasöfnunar, en með því að gögn þessi kunni að skipta máli um úrlausn sakarefnis, þá sé rétt að veita aðiljum samkvæmt löggjöfnun frá 120. gr. laga nr. 85/1936 kost á að láta staðfesta þau fyrir dómi. Tveir dómenda hæstaréttar töldu varnaraðilja einn- ig bundna við áðurnefnda yfirlýsingu, og væri þeim því fyrirmunað að láta staðfesta gögnin, með því að skilyrði lögjöfnunar frá 120. gr. væru ekki fyrir hendi. Samkvæmt 120. gr. skal dómari, sem eftir dómtöku máls verður var við verulegan brest á skýrleik í yfirlýs- ingum aðilja eða á upplýsingum um málavexti að öðru leyti, og ef honum virðist ákvæða 114. eða 115. gr. laganna ekki hafa verið nægilega gætt, kveðja aðilja fyrir dóm og veita þeim kost á að bæta úr því eftir föngum, sem á fátt er um yfirlýsingar eða upplýsingar. Hér er gott dæmi þess, að vafasamt kann að vera mat á því, hvort nota megi lögjöfnun frá tilteknu lagaboði. Frávísun. — Mat (hrd. 21/2.). Á hernámsárunum var afnotaréttur ýmissa landeigna á landi þeirra (X) skertur vegna aðgerða herliðsins. Bæt- ur höfðu verið metnar fyrir þá afnotaskerðingu og þar í faldar bætur fyrir skerðingu hlunninda, svo sem reka og æðarvarps. Fimmtán aðrir landeigendur höfðuðu mál gegn ríkissjóði fyrir afnotaskerðingu á landi sínu (Y), sem eigi var nema að litlu leyti falið í því landi (X), sem áður höfðu verið metnar bætur fyrir. Kröfðust landeigendur þessir tiltekinnar bótahæðar í einu lagi fyrir afnotaskerð- ingu allo síns lands, er skerðingin náði til, og miðuðu við bætur þær fyrir hvern hektara, sem metnar höfðu verið fyrir afnotaskerðingu á hinu áðurnefnda landi (X), með því að þeir töldu alveg bera að fara eftir því mati, enda þótt gagnaðili teldi það ekki sambærilegt við hitt landið. Jafnvel þótt héraðsdómari benti þeim á að láta mat fara fram sérstaklega á bótum fyrir þá afnotaskerðingu, sem þeir hefðu orðið fyrir, þá létu þeir það undan fallast. Vís-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.