Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Page 27

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Page 27
Frá hxstarctti janúar—júní 1951 241 dómi, ef bendingum dómarans hefði ekki verið nægilegur gaumur gefinn. (Hrd. 11/4). Úrskurður ómerktur, með því að þar voru hvorki greindir aðiljar málsins né kröfur þeirra og málsatvikum og málsástæðum eigi nægilega lýst, og því eigi gætt ákvæða 2. málsgr. 190. og 4. málsgr. 193. gr. laga nr. 85/1936. Sýnir þetta, að enn, jafnvel nú eftir 15 ár, er misbrestur á rækslu á ákvæðum einkamálalaganna. 6. Málflutningsmenn. Skjöl (hrd. 20/4). 1 máli milli A og B hafði C hrl. látið fara fram yfirmats- gerð og skoðunar. Með því að henni var mótmælt af hálfu andstæðings málflutningsmannsins, þá lét hann tvo mats- mannanna staðfesta gerðina fyrir dómi í Reykjavík, en þriðji matsmaðurinn var þá kominn til Svíaríkis. Fyrir því þurfti C að fá matsgerðina, sem virtist hafa verið í vörzl- um andstæðingsins, til þýðingar á sænsku, en inn síðar- nefndi sinnti því ekki, að sögn C. Nokkru síðar hafði C þó borizt eftirrit af matsgerðinni, en það taldi hann ófull- nægjandi. Þess vegna tók han frumritið á dómþingi fyrir allra augum, að hans sögn, en dómari og andstæðingur C neituðu því, að þeir hefðu orðið varir við það. Fyrir þetta var C með úrskurði gert að greiða 300 króna réttarfars- sekt samkvæmt 188. gr. laga nr. 85/1936. Hæstiréttur taldi það að vísu ámælisvert, að C tók skjalið með þeim hætti, sem sagt var, en með því að hann átti rétt til skjals- ins, sem ekki hafði verið eign dómsins, sbr. 43. gr. laga nr. 85/1936, C var nauðsynlegt að fá skjalið og andstæðingur hans tregðaðist við að láta það af hendi, þóttu ekki efni til þess að refsa honum fyrir þessa háttsemi hans. Málflutningsmenn. — A'ðild ('hrd. 17/1). Prófdómendur höfðu samkvæmt 2. málsgr. 14. gr. laga nr. 61/1942 kveðið svo á, að sjó- og verzlunardómsmál nokkurt væri á því stigi, er cand. jur. E tók við því,

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.