Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Page 31

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1951, Page 31
Frá hæstarétti janúar—júní 1951 245 ERFÐARÉTTUR. 1. Gagnkvæm erfðaskrá. Verkun laga til liðins tíma (hrd. 4/6). P fyrrverandi kaupmaður, sem átti 3 óskilgetin börn, ið yngsta fætt 1900, og kona hans S. sem engan niðja né kjörbarn átti á lífi, gerðu 22. apríl 1918 gagnkvæma erfða- skrá, þar sem svo var mælt, að hvort þeirra hjóna, er lifði hitt, skyldi erfa þann hluta félagsbús þeirra, sem tilheyrði inu látna, enda skyldi það, er lengur lifði, hafa „fullkomin eignarréttindi yfir öllu félagsbúinu“ og „fullan rétt til að ráðstafa búinu eftir eigin vilja“. Þá höfðu óskilgetin börn enn ekki erfðarétt eftir föður sinn né föðurfrændur. Heim- ild hjónanna til ráðstöfunar þessarar var því óvéfengjan- leg, þegar erfðaskráin var gerð, enda var enginn vafi um arfleiðsluhæfi hjónanna né gerð erfðaskrárinnar að öðru leyti. Ef P hefði látizt og ekkja hans S hefði látið skiptaráðanda fá sér búið í hendur, áður en lög nr. 42/1949 komu til framkvæmda (1. júlí 1949), þá hefði hún óvé- fengjanlega orðið ein erfingi manns síns og eigandi að öllu búi þeirra. Samkvætnt 36. sbr. 44. gr. laga nr. 46/1921 fengu óskil- getin börn, sem fædd voru 10 þrítugnættum mánuðum eft- ir 1. jan. 1922 og faðir hafði veitt viðgöngu eða verið dæmdur faðir, erfðarétt eftir föður og föðurfrændur. Þessi regla var endurtekin í 20. gr. laga nr. 87/1947 um öll in sömu börn, sem fædd voru 1. nóv. 1922 og síðar. Var því einsætt, að óskilgetin börn P áttu ekki tilkall til arfs eftir hann samkvæmt þessum lögum. En svo koma erfðalög nr. 42 23. maí 1949. Samkvæmt 2. gr. þeirra erfa óskilgetin börn föður og föðurfrændur, ef hann hefur gengizt við þeim, verið dæmdur faðir eða talinn faðir, ef honum verður eiðsfall, samkvæmt dómi. 1 máli þessu var enginn ágreiningur um það, að P hefði gengizt við öllum þremur óskilgetnum börnum sínum. Sam- kvæmt 34. gr. þessara laga skulu þau öðlast gildi 1. júlí 1949, þó svo, að eldri lagaákvæði haldi gildi um erfð eftir mann, sem andast fyrir 1. júlí 1949. Samkvæmt 35. gr.

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.