Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 13
rétt alþingis til að lýsa yfir vilja sínum með þingsályktun-
um, en í þeim felast einmitt oft og tíðum áskoranir til ríkis-
stjórnarinnar um að gera hinar eða þessar stjórnarfram-
kvæmdir. Þótt misjafnlega mikið reyni á þéssi ákvæði í
framkvæmd, hafa þau að sjálfsögðu sína þýðingu. Enginn
vafi er t. d. á því, að þingsályktanir og fyrirspurnir þing-
manna hafa mikil áhrif á gerðir ríkisstjórnarinnar, bæði
beint og óbeint. Nefna má það og í þessu sambandi, að þrír
fjórðu þingmanna í sameinuðu þingi geta vikið lýðveldis-
forsetanum frá embætti um stundarsakir, og fyrir fullt
og allt, ef ályktun þeirra er samþykkt við þjóðaratkvæða-
greiðslu, sem fara skal fram innan tiltekins tíma. Sé álykt-
un þingsins hins vegar felld við þjóðaratkvæðagreiðslu, skal
rjúfa þing og efna;til nýrra kosninga, sbr. 3. mgr. 11. gr.
stjórnarskrárinnar.
Af framansögðu er Ijóst, að.alþingi hlýtur að ráða því,
hversu ríkisstjórn e'r skipuð á hverjum tíma. Um leið hlýtur
og alþingi að mark^ stjórnarstefnuna í megin'atriðum, t. d.
hvaða stefnu skuli fylgt í efnahags- og atvinnumálum,
hvort hallast skuli að aukinni þjóðnýtingu, áætlunarbúskap
eða frjálsri samkeþpni, hvaða meginstefnu skuli fylgt í
utanríkismálum o. s.‘ frv. En hér við bætist, áð alþingi eru
fengin yfirráð yfir fjárstjórn ríkisins, svo sem alla jafna
mun tíðkast í þingstjórnarlöndum.
Löggjafanum, og þar með fyrst og fremst aðalhandhafa
löggjafarvaldsins, alþjngi, er samkvæmt stjórnarskránni
áskilinn réttur til að ákvarða um tekjur ríkisins og gjöld.
Engan skatt má því á leggja, breyta né af taka, nema með
lögum, 40. gr. stjskr. Engin gjöld má ríkið inna af hendi,
nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum,
sbr. 41. gr. stjskr., en frumvarp til fjárlaga skal leggja
fyrir hvert reglulegt alþingi, og skal í því fólgin greinar-
gerð um tekjur ríkisins og gjöld, 42. gr. stskr. Þessu síð-
astnefnda stjórnarskrárboði, um efni fjárlaga, er í raun-
inni ekki fylgt bókstaflega. 1 fjárlagafrumvarpi er að vísu
greinargerð eða réttara sagt áætlun um tekjur og gjöld
7