Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 61
hvers vegna úrlausn héraðsdómara hefur verið breytt, og
má víst fullyrða, að greinargerð dómsins er venjulega svo
glögg, að ekki er um að villast, hvað úrslitum hefur ráðið.
En ef nokkur skynsamlegur vafi rís í því efni, þá mundi
geta verið ástæða til að athuga málsskjölin.
Þegar um munnlega flutt einkamál er að tefla, þá kann
að vera hugsanlegt, að málsskjölin veiti ekki réttar upplýs-
ingar um það, hvað fram hefur komið í flutningi máls. Því,
sem neitað hefur verið í greinargerð, kann að vera játað'í
munnlegum flutningi máls, samkomulag hefur orðið um,
að tilteknar varnir, sem málsskjölin hafa að geyma, skuli
ekki hafðar uppi o. s. frv. Þegar svo stendur á, þá mundi
dómsúrlausn segja til um þessi atriði. En ef dómara skyldi
gleymast það, þá mundi eftirgrennslan í dómsskjölum ein-
ungis leiða gagnrýnanda í glapstigu. En sjálfsagt munu
slík tilvik heldur fá.
Flestar úrlausnir héraðsdómara, og sérstaklega héraðs-
dómara í Reykjavík, eru nú orðið svo rækilegar bæði um
lýsingu atvika og um þýðingu þeirra, að könnun á máls-
skjölum er sjaldan líkleg til þess að leiða nokkuð nýtt í
Ijós, er efni máls varðar, enda bætir hæstiréttur venjulega
úr um það, sem áfátt kann að reynast. Könnun málsskjala
gæti sjálfsagt einstöku sinnum orðið dómstólum til verndar
gegn réttmætri gagnrýni, sem annars hefði e. t. v. komið
fram. En ef málsskjalakönnun leiðir það t. d. í ljós, að dóm-
ari hefur gengið fram hjá staðreynd, málsástæðu, mótmæl-
um eða mótmælaskorti í dómi sínum, þá væri við því búið, að
hann sætti gagnrýni fyrir það, enda mætti gagnrýnanda
vel sýnast, að dómari hefði ekki notað með réttum hætti
annars það, sem málsskjöl hefðu þó sýnt. 1 opinberum mál-
um mætti og vera, að könnun málsskjala sýndi það, að
hæstiréttur hefði látið hjá líða að finna að göllum á með-
ferð héraðsdómara eða annarra, sem við mál hefðu komið.
Ekki er það ætlun mín að mæla dómendur undan kurteis-
legri gagnrýni og rökstuddri, en ef hætta er.á því, að slík
gagnrýni geti hnekkt virðingu eða trausti dómstóla, þá er