Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Síða 68
reglur. Ekkert virðist því til fyrirstöðu að sækja í einu
kjörskrármáli kröfur um, að fleiri menn en einn verði
teknir á kjörskrá eða fleiri menn en einn felldir af kjör-
skrá. Hér er um að ræða samkynja kröfur á hendur sama
aðila sbr. 70. gr. 1. nr. 85, 1936. Aðfararfrestur er enginn
og dómsbirting óþöi’f. Kjörskrármálum skal hraða svo, að
þeim verði lokið fyrir kjördag, ef unnt er. Af því leiðir, að
frestir til gagnaöflunar eða til flutnings mála eru örstuttir,
1—2 dagar, ef tími er naumur eða jafnvel styttri, enda er
dómara skylt að halda dómþing í málum þessum utan
venjubundinna þingdaga, ef svo ber undir.
Um kosningarréttarskilyrði skal ekki rætt hér. Þau eru
talin í 33. gr. Stjskr. og 1. gr. kosnl. að því er við kemur
Alþingiskosningum og forsetakosningum sbr. 5. gr. Stjskr.,
en um sveitarstjórnarkosningar eru þau tæmandi talin í 6.
gr. 1. nr. 81, 1936. Munurinn er einungis sá, að við sveitar-
stjórnarkosningar gildir ekki 5 ára búsetuskilyrðið. Á það
skal bent, að samkv. 1. nr. 85, 9. okt. 1946 hafa danskir
ríkisborgarar, sem búsettir voru á Islandi 6. marz 1946 eða
höfðu verið búsettir hér einhverntíma á síðustu 10 árum
fyrir þann dag, kosningarrétt hér á landi, ef þeir fullnægja
öðrum kosningarréttarskilyrðum.
Eins og fyrr var greint líður hartnær heilt ár frá því
kjörskrá til bæjarstjórnarkosninga er samin þar til hún
gengur í gildi. Þetta gildir einnig um kjörskrár í sveitum,
þar sem kosningar fara fram síðasta sunnudag í janúar.
Á kjörskrá skal taka þá, sem fullnægja almennum kosn-
ingarréttarskilyrðum og eru þegar kjörskrá er samin
heimilisfastir í þeirri kjördeild, sem kjörskráin nær til, 12.
gr. ]. nr. 81, 1936. Auk þess skal taka á kjörskrá þá, sem
ná 21 árs aldri á tímabilinu meðan sú kjörskrá er í gildi.
Samsvarandi ákvæði eru í 15. gr. kosnl. Ákvæði þessi eru
tæmandi. Af þessu leiðir það, að þeir, sem flytjast á tíma-
bilinu frá því kjörskrá var samin, þar til kosning fer fram,
úr sveitum, þar sem sveitarstjórnarkosning fer fram í júní-
mán., í sveit eða bæ, þar sem kosning fer fram í janúar,
62