Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Page 18
Bætur greiðast þá fyrir 15 -=- 9: 3 = 12 daga. Hafi hann
haft 5 klukkutíma vinnu á hverjum degi umrædda 24
daga, verða vinnudagar hans samtals 15, en atvinnu-
leysisdaga samtals 9. Bætur greiðast þá fyrir h- 15 : 3
= 4 daga. Hafi hann haft 6 klukkustunda vinnu á hverj-
um degi, verða vinnudagarnir samtals 18, en atvinnu-
leysisdagar samtals 6. Bætur greiðast þá ekki, vegna þess
að 6-í- 18 : 3 = 0, sbr. og 2. mgr. 17. gr.
Réttur til bóta fellur alveg niður, ef bótaþegi hefur
haft samfellda vinnu í 12 daga. Sama gildir þegar ekki
er um samfellda vinnu að ræða, ef bótaþegi hefur haft
samtals 18 vinnudaga af síðustu 21 dögum, sbr. áður
nefnt dæmi. Til þess að öðlast rétt til bóta að nýju, verð-
ur hann að fullnægja skilyrðum 15. gr. c., sjá 17. gr.
2. mgr.
Þegar taldir eru atvinnuleysisdagar, teljast ekki með
þeir dagar, sem umsækjandi hefur notið atvinnuleysis-
bóta. Sama gildir um þá atvinnuleysisdaga, sem hlut-
aðeigandi hefur átt í verkfalli eða verkbanni, sbr. 16. gr. a.
Að lolcum skal þess getið, að í reglugerð, sem úthlut-
unarnefnd semur og ráðherra staðfestir, samkvæmt 14.
gr., má ákveða lengri biðtíma og fleiri atvinnuleysisdaga
sem almennt skilyrði bótaréttar en gert er í 15. gr. c.,
sbr. framanritað. Á sama hátt má með reglugerð setja
sérákvæði um lengri biðtíma þeirra, sem hafa árstíða-
bundna vinnu, hafa tekjur af eigin atvinnurekstri eða
hafa haft hærri tekjur en almennt gerist í byggðarlagi
þeirra síðustu sex mánuði svo og styttri biðtíma fyrir
þá, sem hafa búið við skertan vinnutíma undanfarið,
V. 1 16. gr. laganna eru nefnd nokkur atriði, sem
valda því, að umsækjandi, sem annars fullnægir öllum
þeim skilyrðum, sem um er rætt í IV. hér að framan,
fær ekki greiddar bætur. Ennfremur er ákvæði í 19. gr.
laganna, sem getur valdið því, að bótaréttur, samkvæmt
15. gr., verður óvirkur. Skal nú lauslega vikið að þess-
um atriðum:
12
Tímarit lögfrœðinga