Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Page 31

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Page 31
ins heimilt að kveðja sér til aðstoðar og ráðuneytis hvern læknaráðsmann utan deildar. Ef deild æskir ráðuneytis sérfræðings utan ráðsins, er henni það heimilt í samráði við forseta ráðsins, og á sú heimild við, ef leita þarf sér- fræðings um mál, sem er utan við sérfræðisvið þeirra manna,-er ráðið skipa. Afgreiðsla heilbrigðismáladeildar er fullnaðarafgreiðsla máls á sama hátt og með sömu takmörkunum og greinir um réttarmáladeild hér að framan. 3. Siðamáladeild. Skv. 1. mgr. 3. gr. rg. fjallar siða- máladeild um mál varðandi hegðun og framkomu lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna, en skv. 3. mgr. 2. gr. 1. lætur læknaráð stjórn heilbrigðismálanna í té álit sitt á.því, hvort tiltekin aðgerð, hegðun eða framkoma læknis,Aannlæknis, nuddara, lyfsala, hjúkrunarkonu, ljós- móður - eða annarra þvílíkra heilbrigðisstarfsmanna sé tilhlýðileg eða ekki. Réttarmál, þótt um aðgerð, hegðun eða framkomu lækn- is eða annarra heilbrigðisstarfsmanna sé, heyra aldrei undic siðamáladeild, heldur eingöngu mál, sem borin eru undir ráðið af stjórn heilbrigðismálanna án þess að vera dómstólamál. Ef ráðuneyti það, sem fer með heilbrigðis- mál, bæri t. d. undir læknaráð mál, er varðaði síðast nefnd atriði, vegna þess að til mála hefði komið að víkja lækni frá embætti eða svipta hann lækningalevfi, mundi. slikt mál tvímælalaust heyra undir siðamáladeild. I 3. mgr. 4. gr. 1. er ákveðið, að mál, er varðar sér- staklega aðgerð, hegðun eða framkomu læknis eða ann- arra heilbrigðisstarfsmanna (sbr. 3. mgr. 2. gr. 1.), skuli ráðið jafnan, ef þvi verður við komið, bera undir aðila, svo og stéttarfélag hans, áður en það lætur í té umsögn sína um það. Siðast nefnt ákvæði er sett til að tryggja það, að læknir eða heilbrigðisstarfsmaður geti komið sjónarmiðum sín- um á framfæri, þar sem aðstaða gagnvart framkvæmdar- valdi er allt önnur en gagnvart dómsvaldi. Eins og áður Tímarit lögfrœOinga 25

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.