Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Page 37

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Page 37
ef liann vegna áfengisneyzlu verður eigi talinn geta stjórn- að því örugglega. Ef vínandamagn í blóði manns er 0,60%o til l,30%c, telst liann eigi geta stjórnað tækinu örugglega. Ef vínandamagn í blóði ökumanns nemur l,30%o eða meira, telst hann óhæfur til að stjórna vélknúnu ökutæki. Enginn má stjórna eða reyna að stjórna hestvagni eða reiðhjóli, ef hann er með svo miklum áfengisáhrifum, að liann geti ekki með fullu öryggi stjórnað hestvagn- inum eða reiðhjólinu. Bannað er að fela manni, sem er í því ástandi, sem um getur í 2.—5 mgr., stjórn vélknúins ökutækis, reið- hjóls eða hestvagns. Ef ástæða er til að ætla, að maður hafi brotið framan- greind ákvæði, getur lögreglan fært hann til læknis til rannsóknar, þ. á m. blóð- og þvagrannsóknar, og er honum þá skylt að hlíta þeirri meðferð, sem læknirinn telur nauðsynlega vegna, rannsóknarinnar. Dómsmála- ráðherra setur nánari reglur um þessi efni. Það leysir ekki undan sök, þótt maður ætli vinanda- magn í blóði sínu vera minna en greinir í 2. og 3. mgr. Nú hefur ökumaður neytt áfengis við akstur eða fyrir hann, þannig að vínandamagn í blóði liækkar eftir að alcstri lauk, og skal þá litið svo á, sem hið aukna vín- andamagn hafi verið í blóði hans við aksturinn. Þegar maður hefur neytt áfengis á opinberum veit- ingastað eða veitingamaður eða þjónar hans vita, eða hafa ástæðu til að ætla, að hann muni verða brotlegur við framangreind ákvæði, ber þeim að gera það, sem unnt er, til að hindra brotið, þar á meðal að gera lög- reglunni viðvart. Bannað er að selja eða afhenda ökumanni vélknúins ökutækis eldsneyti eða annað, sem þarf til aksturs, ef hann er með áhrifum áfengis. Tímarit lögfrœöinga 31

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.