Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Blaðsíða 38
Um 25. gr.
Öllum ber saman um, að akstur manna, sem eru með
áhrifum áfengis, sé hættulegur og vítaverður. I sam-
ræmi við það sætir áfengisneyzla við akstur og akstur
manna, sem eru með áhrifum áfengis, sérstökum viður-
lögum, þyngri en ella, og er þessu líkt háttað meðal
skyldra þjóða.
Það skiptir því mildu máli, hvað í því felst að „neyta
áfengis við bifreiðaakstur" og „aka undir. áhrifum á-
fengis“.
Fyrra hugtakið hefur Hæstiréttur skýrt á þann veg,
að áfengisneyzla skömmu áður en tekið er til við akst-
ur, falli undir það. Þessi skýring er eðlileg, því að bók-
stafsskýring er of þröng. Hún mundi leiða til þess, að
ökumaður vrði að vera kominn undir stýri og ökutækið
komið á hreyfingu. Það hugarfar að neyta áfengis svo
að segja samtímis því og akstur hefst, ber vott um svo
vítavert kæruleysi, að eigi má vera refsilaust.
Vandasamara er að kveða á um lengd tímabilsins
frá því að áfengis var neytt og þar til akstur hefst. Er-
lendis hafa komið fram tillögur um að einskorða tíma-
bilið við t. d. 1—2 klst. Nefndin hefur athugað ræki-
lega, hvort rétt væri að lögfesta slíkt ákvæði. Reglan
yrði þá skýr og komizt yrði hjá mjög erfiðu mati, sem
almenningur kann oft að telja handahófskennt, af þvi
að hann þekkir ekki öll þau atriði, sem áhrif hafa á mat-
ið hverju sinni.
Nefndin telur sig þó e'kki geta lagt til, að slílc regla
verði lögfest. Hún yrði mjög erfið í framkvæmd og til-
viljunum liáð. Auk þess gengi hún mjög nærri einlca-
málefnum manna. Oft yrði t. d. nauðsynlegt að talca
réttarskýrslur af fjölda gesta í samkvæmi. En slílcar
skýrslur yrðu þó að jafnaði léleg sönnunargögn. Því er
látið sitja við þær reglur, sem fylgt hefur verið, og mat
dómstóla látið ráða.
Að því er hitt hugtakið snertir — að „aka bifreið
32
Tímarit lögfræðinga