Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Side 52

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Side 52
er fyrir liggja lijá nefndinni, er sendar liafa verið félags- mönnum fjölritaðar. Einnig tók til máls Magnús Thorla- cius, hrl., Lárus Jóhannesson, hrl., Gunnar Pálsson, hrl. Formaður Lárus Jóhannesson gerði það að tillögu sinni, að bætt yrði 2 mönnum í nefnd þá er unnið hefir að at- hugun frumvarpsins. Nefndin héldi síðan áfram störfum og athugaði hverjar breytingar æski'legar væru á núgild- andi einkamálalögum, er komið gætu í stað frumvarps þess, er fyrir liggur. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Kosnir voru i einu hljóði með lófataki til viðbótar í nefndina þeir Magnús Thorlacius, hrl. og Gunnar A. Páls- son, hrl. . ..“ Það, sem fellt er úr i lokin varðar gjaldskrá félagsins o. fl., sem ekki kemur 1. 85/1936 við. Gott var að fá þessa fundargerð. Afgreiðsla málsins er að vísu ekki vel skýr. Hún virðist þó fela í sér, að frum- varpið sé ekki nothæft eins og það er. A hinn bóginn kem- ur fram að breytinga sé þó þörf á lögunum. Á þessum for- sendum er þá málið til atliugunar hjá nefnd félagsins. Rök fyrir hinni neikvæðu niðurstöðu fundarins vantar og tillögur til breytinga eru, mér vitanlega, engar komnar fram eða a. m. k. ekki afgreiddar. Alllangur tími hefir þó verið til stefnu og get ég ekki annað sagt en að betri afgreiðslu málsins hefði mátt vænta. Vonandi verður hennar ekki langt að biða, enda full þörf á því að fram komi þær endurbótatillögur, sem menn eru sammála um, svo og að umræður hefjist um þær, sem ágreiningi kunna að valda. Frá háskólanum. Lokaprófi í lögfræði luku i janúar þ. á. þeir: Ari Þ. Arason I. eink. 205% st. Halldór Þ. Jónsson I. einlc. 179 st. 46 Tímarit lögfrœðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.