Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Blaðsíða 52
er fyrir liggja lijá nefndinni, er sendar liafa verið félags-
mönnum fjölritaðar. Einnig tók til máls Magnús Thorla-
cius, hrl., Lárus Jóhannesson, hrl., Gunnar Pálsson, hrl.
Formaður Lárus Jóhannesson gerði það að tillögu sinni,
að bætt yrði 2 mönnum í nefnd þá er unnið hefir að at-
hugun frumvarpsins. Nefndin héldi síðan áfram störfum
og athugaði hverjar breytingar æski'legar væru á núgild-
andi einkamálalögum, er komið gætu í stað frumvarps
þess, er fyrir liggur.
Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Kosnir voru i einu hljóði með lófataki til viðbótar í
nefndina þeir Magnús Thorlacius, hrl. og Gunnar A. Páls-
son, hrl. . ..“
Það, sem fellt er úr i lokin varðar gjaldskrá félagsins
o. fl., sem ekki kemur 1. 85/1936 við.
Gott var að fá þessa fundargerð. Afgreiðsla málsins er
að vísu ekki vel skýr. Hún virðist þó fela í sér, að frum-
varpið sé ekki nothæft eins og það er. A hinn bóginn kem-
ur fram að breytinga sé þó þörf á lögunum. Á þessum for-
sendum er þá málið til atliugunar hjá nefnd félagsins.
Rök fyrir hinni neikvæðu niðurstöðu fundarins vantar og
tillögur til breytinga eru, mér vitanlega, engar komnar
fram eða a. m. k. ekki afgreiddar.
Alllangur tími hefir þó verið til stefnu og get ég ekki
annað sagt en að betri afgreiðslu málsins hefði mátt vænta.
Vonandi verður hennar ekki langt að biða, enda full þörf
á því að fram komi þær endurbótatillögur, sem menn eru
sammála um, svo og að umræður hefjist um þær, sem
ágreiningi kunna að valda.
Frá háskólanum.
Lokaprófi í lögfræði luku i janúar þ. á. þeir:
Ari Þ. Arason I. eink. 205% st.
Halldór Þ. Jónsson I. einlc. 179 st.
46
Tímarit lögfrœðinga