Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Blaðsíða 53
Nýir hæstaréttarlögmenn.
Á fyrri hluta þessa árs hafa sex lögfræðingar lokið
prófraun málflutningsmanna við Hæstarétt. Þeir eru:
Jón Bjarnason hdl. Hann var um langt skeið fulltrúi
borgardómarans í Reykjavík, en lét af því strafi og hóf
sjálfstæða málflutningsstarfsemi fyrir fáum árum.
Jónas Thoroddsen hdl. Hann var um skeið bæjarfó-
geti í Neskaupstað, en síðan 1945 fulltrúi borgarfógetans
í Reykjavík. Jafnframt hefur hann fengizt við málflutn-
ing o. fl. störf.
Áki Jakobsson fyrrv. ráðherra. Að íagaprófi loknu
geriðst hann um skeið bæjarstjóri á Sigiufirði, en síðan
1942 hefur hann stundað málflutning í Reykjavík. Frá
1948 hefur hann rekið málflutningsskrifstofu í félagi við
Kristján Eiríksson hdl.
Gústaf Ölafsson hdl., hóf þegar að lagaprófi loknu mál-
flutningsstörf og hefir rekið málflutningsstörf hér í
Reykjavík síðan.
Geir Hallgrímsson hdl. hefur, auk ýmissa annarra starfa,
lengst af stundað málflutning, síðan hann lauk lagaprófi,
og rekið sjálfstæða skrifstofu.
Kjartan Ragnars fulltrúi, starfaði alllengi í fjármála-
ráðuneytinu, en síðan hefur hann verið fulltrúi í utan-
ríkisráðuneytinu. Hann hefur og stundað málflutning öðr-
um þræði.
Tímcirit lögfræSinga
47