Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1958, Blaðsíða 26

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1958, Blaðsíða 26
voru eftir Grettissögu, og leikritið Mörð Valgarðsson eftir Jóhann Sigurjónsson, þar sem efni úr Njálu er notað sem uppistaða. Samkvæmt liöfundalögunum hefur höfundurinn einn rétt til að gera og birta hvers konar þýðingar og aðlag- anir á verkum sínum. Hins vegar er berum orðum tekið fram i lögunum, að heimilt sé að gefa út rit, sem telja megi nýtt og sjálfstætt verk, þó að efni annars verndaðs rits sé notað til fyrirmyndar. Þ^'ðingar og aðrar aðlaganir eru oftast gerðar af öðr- um en höfundinum sjálfum. í höfundalögunum segir, að þýðing á riti skuli njóta sömu verndar sem frumrit væri. Þýðandinn fær því höfundarétt að þýðingu sinni. Ef hann hefur þýtt óverndað rit, er liann einn um höf- undaréttinn, en vitanlega er þá einnig öðrum heimilt að gefa út sjálfstæðar þýðingar af sama riti. Sé hins veg- ar þýtt verndað rit, verður þj'ðingin háð bæði höfundar- rétti höfundarins sjálfs og þýðandans. Réttarsamband þeirra um þýðinguna verður svipað og milli tveggja sam- höfunda. Hvorugur getur gefið hið þýdda rit út án sam- þykkis hins. Það er að sjálfsögðu tíðast, að þýðandinn hefur fyrirfram aflað sér samþykkis höfundar, og fer þá um lögskipti þeirra eftir samningnum. Verndartímabil þýðingarinnar er sjálfstætt, þ. e. ævi þýðanda og 50 ár eftir lát hans, og getur þvi staðið lengur en verndartíma- bil frumritsins. Það, sem hér var sagt um þýðingar á ritum, gildir einnig um aðrar aðlaganir á hugverkum. I erlendum lögum og fræðiritum hefur verið greint á milli skapandi listar og listtúlkunar. Listtúlkendur eru þá taldir þeir, sem ekki hafa sjálfir skapað þau verk, sem þeir flytja og túlka, svo sem leikarar, söngvarar, liljóðfæraleikarar og upplesarar. Réttmæti þessarar að- greiningar læt ég liggja á milli hluta, enda hefur verið á það bent, að t. d. leikarar hafa oft lyft hlutverkum sínum á liærra stig listar en höfundur hafði búið þeim i hendur. Hin túlkandi list hefur viða verið talin til að- 72 Tímarit lögfrœOinga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.