Tímarit lögfræðinga - 01.06.1958, Blaðsíða 34
er þeir menn njóta, er sviptir hafa verið frelsi. Ákvæði
þessarar greinar eru vafalaust ein hin mikilvægustu i sátt-
málanum, þegar á það er litið, að viðurkenning þeirra hef-
ur kostað mikla baráttu í ýmsum löndum á liðnum tím-
um. Vernd borgaranna gegn frelsisskerðingum að geð-
þótta valdhafanna eða einræðisherranna er enn þann dag
í dag prófsteinn um virðingu fyrir frelsi og mannhelgi.
5. Sérhver maður á rétt á því, að óháður, óhlutdræg-
ur dómstóll, sem stofnaður er samkvæmt lögum, taki til
meðferðar og úrlausnar mál um réttindi hans eða skyld-
ur, sem ágreiningur er um, innan liæfilegs tíma. Sama
gildir, er maður er ákærður fyrir refsiverðan verknað,
enda skal hann njóta réttlátrar og opinberrar rannsóknar.
Hann skal og saklaus talinn, unz sök hans er sönnuð lög-
fullri sönnun. Margvísleg ákvæði önnur um rétt sakaðra
manna eru og ákveðin (6. gr.).
6. Óheimilt er, að refsilög séu afturvirk, enda hefur
slík regla verið viðurkennd um langa hríð i hinum vest-
ræna heimi. Bætt er við ákvæði um, að refsa megi fyrir
verknað eða aðgerðarlevsi, sem var refsivert, þegar það
átti sér stað samkvæmt almennum grundvallarreglum
laga, viðurkenndum af siðuðum þjóðum. Hafa réttarhöld-
in í Niirnberg vafalaust verið höfð í huga, er ákvæði þetta
var sett (7. gr.).
7. Hver maður á rétt til friðhelgi einkalifs síns, fjöl-
skyldu, heimilis og bréfaskipta (8. gr.).
8. Hver maður skal frjáls hugsana sinna, sannfær-
ingar og trúar (9. gr.).
9. Hver maður á rétt á að láta í ljós skoðanir sinar
(10. gr.).
10. Samkomufrelsi og félagafrelsi (11. gr.), þar á með-
al frelsi til þess að stofna og ganga í stéttarfélag til vernd-
ar hagsmunum sinum.
11. Réttur til stofnunar hjúskapar samkvæmt lands-
lögum (12. gr.).
12. Réttur til að njóta eigna sinna innan þeirra tak-
80
Timarit lögfrœöinga