Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Qupperneq 13
færð undir 145. gr. alm. hgl. og til vara undir 146. og 147. gr. Héraðs-
dómur komst að þeirri niðurstöðu, að með því að votta að viðlögðum
drengskap skattframtal sitt, hefði ákærði gerzt sekur um brot á 145.
gr. alm. hgl. Hæstiréttur kveður ákvæðið ekki eiga við, en gefur
engar skýringar á þeirri afstöðu sinni. Þannig virðist verða að álíta,
að drengskaparyfirlýsingin sé einhvers konar áminnig til framtelj-
anda að fara að lögum. Áður var í dönskum lögum krafizt, að framtal
væri undirritað „eftir bedste overbevisning“. J. H. Jacobsen telur í
sínum skattarétti, að þarna sé um að ræða áminningu um, að skatt-
framtalið skuli vera rétt og í samræmi við framlögð gögn.
Fylgiskjöl.
Auk framtalsins sjálfs, skulu framteljendur skila ýmsum fylgiskjöl-
um með framtalinu, sem skýra út og staðfesta ýmsa þætti þess. Mik-
ilvægustu fylgiskjölin eru án efa ársreikningar, sem þeir sem stunda
sjálfstæðan atvinnurekstur þurfa að láta fylgja framtalinu. í 85. gi'.
rglg. segir, að þeir, sem skyldir séu til að færa tvöfalt bókhald, skuli
láta fylgja framtali sínu nákvæman rekstrar- og efnahagsreikning skv.
bókhaldinu. Aðrir, sem sjálfstæðan atvinnurekstur stunda, skulu gera
fulla grein fyrir heildartekjum og sundurliða rekstrarútgjöld, svo og
eignir og skuldir. Þá skal þeim, sem senda efnahagsreikning, skylt að
láta fylgja skrár yfir inneignir, verðbréf, útlán, útistandandi skuldir
o. s. frv. Þeir sem stunda landbúnað, skulu senda landbúnaðarskýrslu,
sem er plagg sérstaklega útbúið hjá skattyfirvöldum og ætlað til ná-
kvæmrar sundurliðunar á tekjum og rekstrarútgjöldum vegna land-
búnaðarstarfsemi. Húsbyggjendur skulu láta fylgja húsbyggingar-
skýrslu. Auk þessa skulu fylgja framtölum skýrslur um laun, sem
framteljandi hefur greitt á árinu, þ. e. launamiðar ásamt samdráttar-
blaði, hlutafélög skulu senda hlutafjármiða, þ. e. gefa upp' nafn og
heimili hvers hluthafa ásamt hlutafjárupphæð og arðsúthlutun á árinu
á sérstök eyðublöð, og samvinnufélög skila útfylltum sérstökum eyðu-
blöðum um úthlutun á tekjuafgangi og um stofnsjóðsinnstæður og
vexti. öll þessi eyðublöð skulu auðvitað rétt útfyllt og undirrituð. 1
sambandi við undirritun framtala og fylgiskjala skal sérstaklega vakin
athygli á því, að þegar félög eiga í hlut, skal stjórn félagsins undirrita
reikningana og að auki kjörnir endurskoðendur og sá, sem samið hefur
reikningana. Hafa skattyfirvöld lagt sívaxandi áherzlu á, að stjórnir
félaga sinntu þessari skyldu sinni og einnig, að eigendur sameignafé-
laga undirrituðu reikninga.
7