Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Blaðsíða 44

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Blaðsíða 44
hefði verið gerður heiðursfélagi Dómarafélags islands á 70 ára afmæli hans. Á fyrsta fundardegi var auk þessa fjallað um ýmis félagsmál og þegið boð forsætis- og dómsmálaráðherra, er bauð til síðdegisdrykkju. Næsta dag, 10. nóvember, var almennur fundur með starfsmönnum fjármálaráðuneytisins um bókhald innheimtumanna ríkissjóðs og stöðlun skjala. Framsögumenn voru Jón Sigurðsson ráðuneytisstjóri og Sverrir Júlíusson stjórnarráðsfulltrúi. Þennan dag var einnig fjallað um félagsmál og þegið síðdegisboð borgar- stjórans í Reykjavík. Laugardaginn 11. nóvember sátu þeir fundarmanna, sem jafnframt eru umboðsmenn Tryggingastofnunar ríkisins, fund með for- stjóra og starfsmönnum stofnunarinnar, og fundarmenn allir þágu hádegis- verðarboð hennar. Við stjórnarkjör lýsti formaður því yfir, að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Kosningu hlutu: Björgvin Bjarnason sýslumaður og bæjarfógeti, formaður, og meðstjórn- endur: Einar Ingimundarson bæjarfógeti, Magnús Thoroddsen borgardómari, Steingrímur Gautur Kristjánsson héraðsdómari og Andrés Valdimarsson sýslu- maður. — Endurskoðendur voru kosnir: Gunnlaugur Briem sakadómari og Unnsteinn Beck borgarfógeti. Valgarður Kristjánsson Svo sem kunnugt er hafa starfað innan vébanda Dómarafélags Islands Dómarafélag Reykjavíkur og Sýslumannafélag. Ritstjórn er kunnugt um, að tillögur hafa komið fram um að gera breytingar á þessari skipan, en ekki liggja fyrir upplýsingar um það mál á þessu stigi. FÉLAG BANKALÖGFRÆÐINGA Félag bankalögfræðinga var formlega stofnað 28. júní 1972. Félagsmenn geta allir þeir orðið, sem hafa lögfræðistörf að aðalstarfi í íslenzkum lána- stofnunum og félagsfundur samþykkir. Félagsmenn eru nú 20. Tildrög að þessari félagsstofnun voru þau, að um mánaðamót janúar/fe- brúar 1972 hittust nokkrir lögfræðingar, sem hafa lögfræðileg verkefni við banka í Reykjavík að aðalstarfi, til að ræða sameiginleg hagsmunamál sín, einkum kjaramál. I framhaldi af því var boðað til sameiginlegs fundar slíkra lögfræðinga í Reykjavík, sem haldinn var 8. febrúar, til undirbúnings form- legri félagsstofnun, sem síðan fór fram sem fyrr segir. Markmið félagsins er að hafa forgöngu í sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, einkum að því er varðar kjaramál þeirra, — og bæta störf og starfsaðstöðu þeirra með hvers konar félagslegum úrræðum. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því m. a. að verða sjálfstæður samningsaðili um kaup og kjör félagsmanna og aðili að samtökum háskólamanna sem eining innan Lögfræðingafélags íslands, og að gangast fyrir skoðanaskiptum um málefni, sem varða störf félagsmanna, réttindi þeirra og skyldur. Fyrrgreindir félagsmenn eru allir í Reykjavík, en vonir standa til, að í þeirra hóp bætist innan tíðar einhverjir utan af landi, þótt fáum slíkum sé þar til að 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.