Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Blaðsíða 33
4. Samvinna norrænna lagamanna
Fundur starfsmanna lögfræðingafélaganna á Norðurlöndum var haldinn í
Helsingfors 22. og 23. ágúst 1972. Síðari daginn var einnig fundur í ný-
stofnuðu samstarfsráði þessara samtaka. Formaður Lögfræðingafélags ís-
lands sótti fundina, og við þetta tækifæri gerðist félagið aðili að samstarfs-
ráðinu.
Félagsmönnum voru kynntar upplýsingar um norræna lögfræðingamótið
í Helsingfors 24.—26. ágúst. Eins og kunnugt er starfar sérstök Islandsdeild
innan samtaka þeirra, sem skipuleggur mót þessi.
5. AnnaS
Hér í tímaritinu er getið sérstaklega um Bandalag háskólamanna (BHM),
mannréttindaráðstefnu í júní og skattaréttarnámskeið í nóvember.
Að ósk allsherjarnefndar efri deildar Alþingis sendi stjórn féiagsins um-
sögn um frumvarp til laga um stofnun og slit hjúskapar með bréfi 23. febrúar.
Nokkur fleiri mál voru afgreidd af stjórninni.
Þór Vilhjálmsson
Stjórn Lögfræðingafélags islands 1971—2, talið frá vinstri: Friðrik Ólafsson,
Jónatan Þórmundsson, Þór Vilhjálmsson, Knútur Bruun, Stefán Már Stefáns-
son, Sigurður Hafstein og Hrafn Bragason. (Ljósm.: Brynj. Helgason.)
27