Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Page 9
Foreldrar og æskuheimili Óskars Borg mótuðu hann mjög, en eins og al-
kunnugt er, voru foreldrar hans brautryðjendur íslenskrar leiklistar og móðir
hans um langt árabil dáðasta leikkona hér á landi.
Honum og systkinum hans var þv( í blóð borin leiklistargáfa og áhugi fyrir
leiklist og verður því Óskars Borg trauðla minnst svo ekki verði getið starfa
hans á því sviði. Á yngri árum lék hann í mörgum leikritum hjá Leikfélagi
Reykjavíkur og síðast setti hann ímyndunarveikina á svið hjá Þjóðleikhúsinu
árið 1951.
Óskar Borg var hár maður vexti og fyrirmannlegur og vakti því athygli hvar
sem hann fór. Við samstarfsmenn Óskars síðustu starfsár hans geymum minn-
ingu um góðan starfsfélaga, skemmtilegan og glaðværan viðmælanda og síðast
en ekki síst mann einstaklega háttvísan í öllu dagfari, sem ætíð gaf sér tíma
til að aðstoða og gefa ráð, þegar til hans var leitað.
Óskar var hamingjumaður í einkalífi sínu. Hann var kvæntur mikilli ágætis-
konu, Elísabetu Flygenring og áttu þau tvö börn, Ragnar, viðskiptafræðing og
framkvæmdastjóra og Önnu.
Langt fram á áttræðisaldur var Óskar heilsugóður og stundaði sér til heilsu-
bótar göngur um götur borgarinnar. Siðustu æviár sín átti hann við alvarlegan
heilsbrest að stríða og naut þá einstakrar umönnunar konu sinnar.
Eiginkonu, börnum og öðrum aðstandendum skal vottuð samúð.
Blessuð sé minning Óskars Borg.
Sveinn H. Ragnarsson.
LÁRUS JÓHANNESSON
Lárus Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður og
síðar hæstaréttardómari, var fæddur á Seyðis-
firði 21. október 1898, og lést að heimili sínu,
Suðurgötu 4, Reykjavík, 31. júlí 1977. Hann var
sonur Jóhannesar bæjarfógeta á Seyöisfirði og
síðar í Reykjavík Jóhannessonar og konu hans,
Jósefínu Lárusdóttur Blöndals. — Foreldrar
Jóhannesar bæjarfógeta voru Jóhannes Guð-
mundsson sýslumaður í Mýra- og Hnappadals-
sýslu og Maren dóttir Lárusar Thorarensens
sýslumanns Skagfirðinga. Lárus var sonur Stef-
áns Þórarinssonar amtmanns á Möðruvöllum.
Móðir Marenar var Elín Jakobsdóttir Havsteins
kaupmanns á Hofsósi, systir Péturs amtmanns,
einnig á Möðruvöllum. Faðir Jósefínu var Lárus
sýslumaður Blöndal að Kornsá í Vatnsdal,
Björnssonar sýslumanns að Hvammi í Vatnsdal, þess er tók upp ættarnafnið
og mikill ættbogi er frá kominn. Kona Lárusar Blöndals og móðir Jósefínu var
Guðrún Þórðardóttir verslunarstjóra á Hofsósi og síðar Akureyri, Helgasonar.
Lárus Jóhannesson lauk lögfræðiprófi með glæsibrag 21 árs gamall eftir
þriggja ára nám. Að prófi loknu var hann árlangt við framhaldsnám í Dan-
55