Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Blaðsíða 16

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Blaðsíða 16
eiginlega laridgrunns, þ.e. stöpulsins, ca. 20—80 sjómílur út frá landinu. Við brún landgrunnsins er dýpi um 4—500 metrar, en það er einmitt í dag nýtingarmarkið, þar sem ekki er unnt að nýta auðlindir hafs- botnsins, olíu- og gaslindir, á meira dýpi. Samkvæmt ákvæðum Genfar- samningsins — og skilgreiningu laga nr. 17/1969, — nær því yfirráða- réttur Islands ekki til þeirra víðáttumiklu hafsbotnssvæða, sem liggja utan landgrunnsstöpulsins, en innan 200 sjómílna fiskveiðilögsög- unnar. Þurfa því erlend félög strangt tekið ekki leyfi eða heimildir frá íslenskum stjórnvöldum til að kanna botnlög hinna dýpri hafsbotns- svæða utan landgrunnsins, en innan fiskveiðilögsögunnar, þótt tvö bandaiúsk leitarfélög hafi nýlega sótt um, og annað þegar fengið, slíkt leitarleyfi þar) Nú er það alkunna, að sífellt finnast nýjar olíu- og gaslindir á hafs- botni í norð-austur Atlantshafi. Hér skal engum getum að því leitt, hvort verðmæt jarðefni kunni að finnast á hafsbotni við Island. En sjálfsagt sýnist þó, að tryggð verði sem fyrst yfirráð íslenska ríkisins til hafsbotnssvæðisins út að 200 sjómílna mörkunum. Unnt væri að gera það með breytingu á lögum nr. 17/1969. Hitt sýnist þó eðlilegra að fjalla um landgrunns- og hafsbotnsyfirráðin í sérstökum kafla í nýrri landhelgislöggjöf. Til skamms tíma voru heimildir ríkja á þessu sviði takmarkaðar við ákvæði Genfarsamningsins um landgrunnið, þ.e. 200 metra dýptar- línuna eða nýtingarmörkin. ör þróun í hinum alþjóðlega hafrétti síð- ustu árin hefur hinsvegar valdið því, að ríkjum er nú væntanlega talið fullheimilt að taka sér yfirráð yfir öllu hafsbotnssvæðinu innan 200 sjómílna markanna, þ.e. innan hinnar svonefndu auðlindalögspgu (economic zone). Hafa allmörg ríki þegar á síðustu misserum lögfest ákvæði um slíka 200 sjómílna auðlindalögsögu, þannig að fordæmi eru þar fyrir hendi. Fjöldi þeirra ríkja, sem lögfest hafa 200 sjómílna auðlindalögsögu eða landhelgi, er nú um 45. í Evrópu hafa Noregur, Spánn og Portúgal nýlega sett lög um 200 sjómílna auðlindalögsögu, sem tekur bæði til hafsins og botnsins. Þar að auki er ráð fyrir því gert í uppkastinu að hinum nýja hafréttarsáttmála, 76. gr., að ríki fái yfirráð yfir landgrunninu og hafsbotninum út að 200 sjómílum-h 1) Sbr. fréttatilkynningu iðnaðarráðuneytisins 16. júní 1978. 2) Texti 76. gr. uppkastsins er svohljóðandi: „The continental shelf of a coastal State comprises the sea-bed and subsoil of the submarine areas that extend beyond its territorial sea throughout the natural prolongation of its land territory to the outer edge of the continental margin, or to a distance of 200 nautical miles from the baselines from which the breadth of the territorial sea is measured where the outer edge of the continental margin does not extend up to that distance." 62
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.