Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Qupperneq 13

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Qupperneq 13
sjómílna landhelgismörk nú helgast af réttarvenju, er næsta óeðlilegt, að ekki skuli vera skýrlega fyrir um það mælt i lögum, hve langt á haf út landhelgin almennt nær, þ.e. hvar ytri mörk íslensks ríkisvalds liggja. Fjarlægðarmark landhelginnar hér við land er aðeins að finna í tveim- ur sérlögum, og er landhelgin þar ákvörðuð fjórar sjómílur. Eru það áfengislög nr. 82/1969, 6. gr., og lög um tollheimtu og tolleftirlit nr. 50/1959, 6. gr. I öðrum lögum, þar sem vikið er að landhelgi, er ekki að finna nein fjarlægðarmörk, sbr. sóttvarnarlög nr. 84/1954, 20. gr., 1. gr. tilsk. nr. 44/1939 um aðgang herskipa og herloftfara erlendra ríkja, er ekki eiga í ófriði, að íslensku forráðasviði, og lög um land- helgisgæslu Islands nr. 25/1967, 1. gr. Hefur verið talið, væntanlega með lögjöfnun frá ákvæðum áfengis- og tollheimtulaga, að þar sem rætt er um landhelgi í fyrrgreindum lögum, sé átt við 4 sjómílna land- helgi. Hér er því augljós nauðsyn ótvíræðrar réttarheimildar um það, hver séu hin ytri mörk íslensks ríkisvalds, þ.e. hin almennu lögsögumörk. Við slíka lagasetningu vakna tvær spurningar: (1) hve margar sjó- mílur á landhelgin við Island að vera? og (2) við hvaða innri mörk á að miða, þegar hún er ákvörðuð? Áður fyrr var landhelgin 32 sjómílur skv. konungsbréfi frá 1631, 16 sjómílur, sbr. tilskipun 31. júlí 1662, og loks 4 sjómílur sbr. konungs- úrskurð 22. febrúar 1812, og kancellíbréf 16. desember 1845. Ekki sýnist ástæða til þess að halda lengur í hina gömlu fjögurra mílna reglu, og er hér gerð tillaga um, að hin almenna lögsöguland- helgi við Island verði ákvörðuð 12 sjómílur. ör þróun á sviði hins al- þjóðlega hafréttar hin síðari ár hefur leitt til þess, að nú er ríkjum að þjóðarétti talið heimilt að taka sér 12 mílna landhelgi. Kemur það m.a. glöggt fram í síðasta uppkasti að hafréttarsáttmála, sem til umræðu er á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Segir í 3. gr. annars hluta sáttmálauppkastsins, að ríki eigi rétt á að ákvarða landhelgina allt að 12 sjómílum1/ Hafa mörg ríki þegar lögfest 12 sjómílna mörkin án mótmæla eða athugasemda.1 2) Spyrja má í þessu sambandi, hvort ástæða sé til þess að hverfa frá hinum gömlu 4 sjómílna mörkum. Greinarhöfundur telur, að ótvírætt sé æskilegt, að lögsaga íslenskra stjórnvalda nái til 12 sjómílna marks- ins undan sti'öndum landsins. Hefur það gildi, m.a. að því er varðar 1) Third U.N. Conference on the Law of the Sea. Official Records, Volume VIII. New York 1978, bls. 6 2) National Legislation and Treaties Relating to the Law of the Sea. U.N. Legislative Series, New York 1974, bls. 3—40. 59

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.