Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Síða 3
rniAmi ——
LÖ(.IISIJ>I\(.A
4. HEFTI 32. ÁRGANGUR DESEMBER 1982
FRÁ LÖGMÖNNUM
Það mun hafa verið venja, að formenn Lögmannafélags íslands létu frá
sér heyra í Tímariti lögfraeðinga ár hvert. Þessi siður hefur einhverra hluta
vegna fallið niður á seinustu árum. Þegar ritstjóri blaðsins færði þetta í tal
við mig, taldi ég mér skylt að verða við ósk hans um að taka upp þessa
venju að nýju. i þessu sambandi má minnast þess, að Lögmannafélag íslands
var útgefandi tímaritsins til ársins 1956.
Á nokkrum undanförnum árum hafa orðið talsverðar breytingar á starfsemi
L.M.F.Í. Þessar breytingar má að hluta rekja til þess að ráðinn var til félags-
ins framkvæmdastjóri í fullu starfi. Þá hefur félagið komið sér fyrir í nýju hús-
næði að Álftamýri 9. Ráðning framkvæmdastjóra gjörbreytti störfum stjórnar-
innar, en áður fór mikil vinna hjá stjórnarmönnum í úrskurði og álitsgerðir og
sátu þá félagsmál frekar á hakanum. Á þessu er orðin breyting, og hafa stjórn-
ir L.M.F.i. getað tekið upp nokkra félagslega þætti til umfjöllunar. Sum þessara
mála hafa komist í framkvæmd fyrir tilstuðlan hins ötula framkvæmdastjóra
félagsins. Ég er þess fullviss, að lögmenn kunna að meta aukna þjónustu.
Af þeim málum, sem stjórnin hefur verið að vinna að að undanförnu, má
nefna tölvumál, félagsaðildarmál og fræðslumál.
Um tölvumálið er það að segja, að á vegum félagsins hefur starfað sér-
stök tölvunefnd, sem unnið hefur að því að marka stefnu í þessu máli í sam-
ráði við stjórn félagsins. Til þessa hefur starfsemi nefndarinnar beinst að
upplýsingaöflun og fræðslustarfi, en málið er að komast á það stig, að stjórn
L.M.F.i. geti endanlega markað stefnu sína og gefið félagsmönnum skýrslu
um málið.
Félagsaðild að L.M.F.Í. hefur verið mikið rædd innan stjórnarinnar. Nokk-
ur óvissa hefur ríkt um það, hverjir séu skylduaðilar að félaginu. Það verður
að játa, að mönnum sýnist nokkuð sitt hverjum, hvernig líta beri á þetta mál.
Það er Ijóst, að nú, eftir að félagið hefur stóraukið þjónustu sína við lög-
menn, er nauðsynlegt að koma félagatali í viðunandi horf. Stjórn L.M.F.Í.
er einhuga í þessu máli og hefur lagt fyrir framkvæmdastjóra að taka alla,
sem leyst hafa til sín réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi eða Hæsta-
173