Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Qupperneq 11

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Qupperneq 11
hann, nema gild rök lægju til annars. Kristján var djarfur til átaka og að- gerða og afstaða hans mótaðist oft af leikgleði, sennilega bæði í viðskiptum og stjórnmálum. í slíkri leikgleði mat hann verðuga andstæðinga og kosti þeirra. Kristján var ritstjóri Vísis í 15 ár, en um skeið gaf hann út vikublaðið Fálkann, sem var mjög vinsælt á sínum tíma og þarfarit þá fyrir daga sjónvarps. Kristján Guðlaugsson var skáld gott, en Jónas Guðlaugsson skáld var bróðir Kristjáns. Séra Guðlaugur, faðir hans, mun líka hafa verið skáldmæltur. Hugur Kristjáns var dagfarslega hinn frjálsi hugur skáldsins. Dróma hvers- dagsleikans viðurkenndi hann ekki, en leitaði oft lausna þvert á venjur. Þegar ég fyrst hitti Kristján Guðlaugsson fyrir áratugum í teiti lögmanna hvatti hann ákaft til vegalagningar yfir Sprengisand, sem stystu leið milli landshluta. Hefi ég oft minnst þessa og þeirrar leiðar, er við unnum saman á öðrum leiðum, þ.e. hjá Loftleiðum. Undirritaður hóf störf hjá Loftleiðum 1962. Skrifstofur Alfreðs Elíassonar, framkvæmdastjóra, og Kristjáns Guð- laugssonar voru hlið við hlið og lágu gagnvegir vina á milli. Á skrifstofum Loftleiða við Reykjanesbraut var andi gleði og vináttu. Allir áttu greiða leið til formanns. Kristján var þá í fullu starfi hjá Loftleiðum sem lögfræðingur, jafnframt því að vera stjórnarformaður. Örugg lögfræðileg forsjá var Loftleiðum nauð- synleg til að geta haldið „sínu striki“. Víða var sótt að félaginu. Reynt var að sverta nafn félagsins hérlendis sem erlendis m.a. vegna flutnings á „hippurn" milli vesturheims og gamla heimsins. En í raun fór margur Banda- ríkjamaður við lítil efni sína fyrstu lærdómsferð þannig með Loftleiðum. Ég veitti því oft eftirtekt á ferðum mínum að pappírskiljur „hippans" báru titla heimsbókmenntanna. Margur prófessor í Bandaríkjunum og reyndar líka á meginlandinu minnist slíkra ferða á yngri árum og margir hafa síðan komið hingað til dvalar, en ekki lengur sem ,,hippar“. Oft varð að finna sprengi- sandsleið til að árangri yrði náð. Kristján var maður listrænn, hafði gleði af góðum málverkum. Hann fékk því framgengt að Loftleiðir létu smíða stóra afsteypu af verki Ásmundar Sveinssonar: Gegnum hljóðmúrinn, sem varð tákn starfseminnar í augum margra erlendra gesta. Kristján var vinsæll maður, Ijúfur, þegar það átti við — einlægur við samstarfsmenn. Kristján var um skeið formaður Flugleiða, eftir sameiningu flugfélaganna tveggja. Árið 1932 kvæntist Kristján ágætri konu, Bergþóru Brynjólfsdóttur, tann- læknis Björnssonar. Börn þeirra eru Anna, sem gift er Hauki Steinssyni, tann- lækni, og Grétar Brynjólfur, lögfræðingur, starfandi hjá Flugleiðum. Annars staðar hafa hin ýmsu störf Kristjáns verið rakin ítarlegar, en að loknu dagsverki fór hann iðulega í bústað sinn í Rauðhólum, þar sem fingur hans hlúðu að nýgræðingi. Kristján ræddi oft um þennan gróður, trén, sem döfnuðu í stuttum, björtum íslenskum sumrum. Sum bættu hæð sína um þumlung á hverju ári, önnur meir, einstaklingar í harðri lífsbaráttu. Sum urðu kali að bráð. Með natni og alúð mátti bæta þeim kjörin og styrkja þau. Svo er um margt í umhverfi okkar, á lífsskeiði okkar. Kristján Guðlaugsson átti gott og farsælt Iífsskeið. Guðmundur W. Vilhjálmsson. 181

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.