Tímarit lögfræðinga - 01.12.1986, Side 20
5.1. 57. og 59. gr. laga nr. 3/1878
Þegar langlífari maki ábyrgist skuldir, á skiptaráðandi að sjá svo
um, að honum sé gerð sem minnst tálmun í afnotum búsins, sbr. 57.
gr. skiptalaga. Langlífari maki getur haldið umráðum yfir eignum
búsins og ráðið yfir því á venjulegan hátt. Það er aðeins, ef sérstök
ástæða er til að óttast, að eftirlifandi maki muni fara illa með eigur
búsins, meðan á skiptum stendur, að skiptaráðandi getur svipt hann
forráðum bús ogfengið þau í hendur sérstökum fjárhaldsmanni. Skipta-
réttur fær ekki forráð eignanna, heldur fjái'haldsmaðurinn.22)
Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. skiptalaga byggjast skiptin á framtali
eftirlifandi maka á eignum og skuldum búsins, ef erfingjar og fjár-
haldsmenn taka það gilt og skiptaráðanda þykir ekki ástæða til að
rengja það fyrir hönd ófjárráða eða fjarstaddra erfingja. Ekki þarf
að selja fjármuni búsins, heldur láta virða þá samkvæmt 47. gr. Eins
og lýst var að framan, getur langlífari maki haldið öllu búinu, þótt
meira nemi en búshluta hans og arfi, enda greiði hann samerfingjum
sínum í peningum það, sem umfram er, og einfaldar það mjög alla
skiptameðferð.
5.2. Eignalaus bú
Þegar ætla má, að eignir séu ekki meiri en svo, að hrökkvi fyrir út-
fararkostnaði, má skiptaráðandi þá þegar selja það í hendur þess, sem
kostar útförina, sbr. 10. gr. 1. mgr. skiptalaga. Þetta er ákaflega ein-
föld regla skiptalega séð. Sá, sem fær búið útlagt í útfararkostnað,
tekur ekki á sig ábyrgð á skuldum hins látna.23) Samkvæmt upplýs-
ingum frá skiptarétti í Reykjavík var skiptum lokið á þennan hátt í
31,74% tilvika á árunum 1973-1983.24)
1 2. mgr. 10. gr. skiptalaga er kveðið á um einfalda skiptameðferð á
mjög eignalitlum dánarbúum, sem hrökkva þó fyrir meiru en greiðslu
útfararkostnaðar. Samkvæmt upplýsingum frá skiptarétti í Reykjavík
er þessi leið nær aldrei farin, og er farið með þessi bú að hætti 1. mgr.
10. gr.
Skiptaráðandi getur lokið skiptunum með því að láta eigurnar ganga
upp í útfararkostnað, ef þær nema ekki meiru en honum svarar og ef
ekki verður meira afgangs en þarf til greiðslu á kröfum skuldheimtu-
manna, sem hafa forgangsrétt. Getur skiptaráðandi þá lagt þeim út
22) Sbr. Harbou, s. 206.
23) Sjá J0rgen N0rgaard, s. 318.
24) í Danmörku falla tæplega 25% af öllum dánarbúum undir þetta, sbr. Jprgen N0r-
gaard, s. 318.
234