Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1986, Qupperneq 37

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1986, Qupperneq 37
frá slysatryggingu, einkum ef sjómaður lét ekki eftir sig aðstandend- ur, sem voru taldir hafa verið á framfæri hans í merkingu skaðabóta- réttar. Hér hefur verið lagt til grundvallar, að sjómaður hafi eigi sjálf- ur verið talinn eiga sök á slysi sínu. Sakarskipting gat að sjálfsögðu leitt til þess, að minni bætur fengjust eftir reglum skaðabótaréttar en slysatryggingarreglum, enda þótt fyrrgreindar reglur hefðu leitt til hærri bótafjárhæðar án sakarskiptingar. Ljóst er af þessu, að mikill munur gat orðið á bótakröfu vegna sjóslyss eftir því, hvort tjónþoli krafðist bóta eftir reglum um efndabætur eða valdi þann kost að reisa kröfu á hlutlægri bótareglu siglingalaga. Munurinn gat bæði komið til vegna mismunandi reglna um ákvörðun bótafjárhæðar (mat á tjóni) og réttaráhrif sakar tj ónþola. Með 5. tl. 175. gr. sigll. varð sú grundvallarbreyting, að hlutlæg bóta- ábyrgð, sem hvílir á útgerðarmanni vegna slysa sjómanna, takmarkast við slysatryggingarfjárhæðirnar í 2. mgr. 172. gr. Á tjónþoli því ekki rétt á hærri bótum eftir hlutlægu bótareglunni en sem nemur lögmælt- um vátryggingarbótum, enda þótt hann geti sýnt fram á, að tjón sé meira eftir almennum reglum skaðabótaréttar um ákvörðun bótafjár- hæðar. Slíkt tjón getur hann að sjálfsögðu fengið bætt, ef útgerðar- maður er bótaskyldur eftir almennum skaðabótareglum. Hitt er svo annað mál, að ef slys hefur hlotist af „vítaverðu“ gá- leysi skipverja, getur það hugsanlega skipt máli, hvort tjónþoli reisir kröfur á 1. mgr. 172. gr. eða reglum um efndabætur, því að siglinga- lagaákvæðið gerir ráð fyrir lækkun (eða jafnvel niðurfellingu) skaða- bóta á grundvelli eigin sakar tjónþola, en slysatryggingarreglur ekki, sjá þó kafla 2.3 hér að framan. Árið 1980 voru sett lög til þess að tryggja rétt sjómanna og að- standenda þeirra, ef umsamdar slysatryggingarbætur fengust ekki greiddar vegna vanrækslu útgerðarmanns um að halda slysatryggingu í gildi. Með lögunum var felld á ríkissjóð ábyrgð á greiðslu umsaminna slysatryggingarbóta, ef útgerðarmaður reyndist ekki fær um að greiða þær, sbr. 3. málsl. 6. tl. 7. gr. laga nr. 63/1961 um lögskráningu sjó- manna, sbr. lög nr. 71/1962 og lög nr. 24/1980. Regla sama efnis er nú í 6. tl. 7. gr. laga nr. 43/1987 um lögskráningu sjómanna. Þessi vara- ábyrgð ríkissjóðs er afar mikilvæg, þótt ekki sé líklegt, að oft reyni á hana. 251
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.