Tímarit lögfræðinga - 01.12.1986, Blaðsíða 57
mannahafnarháskóla. Fundurinn var haldinn í samvinnu við lagadeild Há-
skóia íslands.
11. 8. október 1986. „New Developments in Bankruptcy Law in Israei, U.S.A.
and England." Fyrirlesari var Dr. Shlomo Levin, hæstaréttardómari í
ísrael.
12. 16. október 1986. „Nye stromninger i debatten om ansvaret for person-
skader, særlig med henblik pá debatten i Norge.“ Framsögumaður var dr.
juris Peter Lodrup, prófessor við lagadeild Oslóarháskóla.
Af þessum 12 fræðafundum voru þrír hádegisfundir. Aðalfundurinn var
haldinn i ráðstefnusal Hótels Loftleiða. Tveir hádegisfundanna voru á veit-
ingahúsinu Gauki á Stöng, en einn á veitingahúsinu Litlu-Brekku. Aðrir fræða-
fundir voru haldnir í Lögbergi. Fundarsókn var að jafnaði góð. Bókaðir fund-
armenn voru alls 458, eða að meðaltali 38 á hverjum fundi.
Málþing félagsins árið 1986 var haldið hinn 27. september í samkomuhúsinu
Festi í Grindavlk. Var þar fjallað um vanefndir í fasteignakaupum. Þeir Frið-
geir Björnsson, borgardómari og Sigurður Helgi Guðjónsson, hrl. unnu mikið
starf með stjórn félagsins við fræðilegan undirbúning málþingsins. Eru þeim
færðar þakkir fyrir. Eftirtaldir framsögumenn fluttu fyrirlestra um neðangreind
efni: Dr. jur. Gaukur Jörundsson, prófessor: „Meginreglur um fasteignakaup,"
Ragnar Aðalsteinsson, hrl. og Viðar Már Matthíasson, hdl.: „Almennt um van-
efndir og vanefndaúrræði,“ Friðgeir Björnsson, borgardómari: „Skoðunar-
og upplýsingaskylda," Hrafn Bragason, borgardómari: „Gallar,“ Sigurður
Helgi Guðjónsson, hrl.: „Riftun,“ og Brynjólfur Kjartansson, hrl.: „Uppgjör
efndabóta við riftun." Vegna fjölda framsögumanna og þess, hve sumir fyrir-
lestranna voru langir, gafst lítill tími til almennra umræðna, en framsögu-
menn svöruðu ýmsum fyrirspurnum. Málþingið hófst um kl. 10 árdegis og stóð
til kl. 17. Matarhlé var um hádegið og kaffihlé síðdegis. Eftir kl. 17 var borinn
fram síðdegisdrykkur. Þátttakendum á málþingum félagsins hefur fjölgað
mjög allra síðustu árin. Á þessu þingi voru 174 lögfræðingar og er þingið
sennilega fjölmennasta samkoma íslenskra lögfræðinga til þessa.
Stjórnarfundir á árinu voru sjö. Auk þess var mikið starf unnið utan funda,
m.a. af nefnd, sem undirbjó málþingið.
Á þessu ári lét Hilmar Norðfjörð af starfi afgreiðslumanns Tímarits lög-
fræðinga. Starfinu gegndi hann frá því að tímaritið kom fyrst út á árinu 1951.
Eru honum þökkuð störf hans. Tekinn er til starfa nýr afgreiðslumaður, Gunnar
Valvesson, en hann aðstoðaði áður Hilmar Norðfjörð. Gerði stjórn félagsins
hinn 12. febrúar 1986 samning við Gunnar um að annast afgreiðslu ritsins.
Mun hann dreifa tímaritinu til fastra áskrifenda, annast lausasölu, innheimtu
og vörslu upplags ritsins. Ennfremur mun Gunnar Valvesson safna auglýs-
ingum og annast allar fjárreiður ritsins. Afgreiðsla tímaritsins er heima hjá
Gunnari að Fiskakvísl 34, 110 Reykjavík. Sími hans er 671591.
Á undanförnum árum hefur fjárhagur Tímarits lögfræðinga verið erfiður.
Er aðalástæða þess vanskil margra áskrifenda. Hafa stjórnin og hinn nýi af-
greiðslumaður gert gangskör að því að endurreisa fjárhag tímaritsins. Verð-
ur það ekki gert, nema áskrifendur greiði áskriftargjöld fljótt og vel. Jafnframt
verður þorri ógreiddra áskriftargjalda frá fyrri árum að innheimtast. Væntir
stjórnin góðra undirtekta félagsmanna og bendir á, að áskriftargjaldi er I hóf
stillt. Rekstur tímaritsins mun aldrei hafa skilað neinum ágóða til félagsins og
271