Ægir - 01.08.1995, Side 6
vart þýsku marki. Verö á þorski hefur
því ekki verið gott.
Það hefði einhvern tímann þótt saga
til næsta bæjar að fá að staðaldri
50-100% hærra verð fyrir grálúðu en
þorsk. Það er ekki það að smekkur fólks
hafi breyst heldur er þessi fiskur sem er
seldur í Hull og Grimsby flakaður og
unninn í Bretlandi og síðan seldur
áfram niður tii Evrópu þar sem alltaf
hefur verið markaður fyrir þessar teg-
undir en þetta svæði er eitt og sama
markaðssvæðið."
Á fiskmarkaðnum í Hull, frá vinstri:
Sigurður Einarsson Vestmannaeyjum,
Pétur Björnsson og Vic Morrow,
meðeigandi í ísbergi.
Á góðri stundu í garðinum heima, frá
vinstri: Gústaf Baldvinsson,
starfsmaður ísbergs í Hull, Hörður
Þórhallsson, skipstjóri í Keflavík, og
Pétur Björnsson.
steinbít, keilu og fieiri slíkum tegund-
um til Bretlands.
Útflutningur á ferskum flökum hefur
þó ekki aukist eins mikið og margir
spáðu. Ástæðan er fyrst og fremst sú að
fiskkaupendur vilja handflaka fiskinn
sjálfir og sú aögerð er mjög ódýr. Þeir ná
mjög góðri nýtingu, flökunum er pakk-
að jafnóðum af flökurunum. Þegar upp
er staðið vilja þeir ekki greiða meira fyr-
ir flök en heilan fisk þegar tillit er tekið
til nýtingar."
Ekki ganga í ESB
Vœri, frá þínum bœjarciyrum séð,
skynsamlegt fyrir íslendinga að stíga
skrefið til fulls og sœkja um inngöngu í
ESB, eins og ýmsir liafa hvatt til?
„Nei það tel ég ekki. Ég get ekki séð
hvern viðskiptalegan ábata viö hefðum
af því. Persónulega er ég ekki hrifinn af
stórum bandalögum eins og þessu. Ég
held að úr þessu verði tröll sem á end-
anum éti börnin sín. Ég er viss um aö
Bretar, sérstaklega fiskimenn, myndu
vilja ganga úr ESB á morgun ef þeir
ættu þess kost.
Breskir fiskimenn segjast hafa verið
blekktir en það ber að hafa í huga að
breskur sjávarútvegur er hlutfallslega
léttvægur samanborið við íslenskar að-
stæður. "
Nú liggur fyrir að þorskafii á nœsta
ári verður sá minnsti sem leyfður hefur
verið um árabil. Hvernig eru horfur fyrir
Ávinningur en engin bylting
Þú lýsir því hvernig Bretland og Evr-
óþa eru orðin einn markaður.
Hefur innganga íslands í EES, evr-
óþskt efnahagssvœði, breytt aðstœðum á
markaðnum?
„Nei, það var vissulega ávinningur
en ekki sú bylting sem boðuð var. ís-
land hefur veriö með einstaklega góðan
samning við Efnahagsbandalagið í
gegnum EFTA allt frá stofnun þess. Við
höfðum mjög mikið tollfrelsi með okk-
ar afurðir. EES samningurinn kom okk-
ur til hagnaðar að því leyti að tollar á
ferskum flökum voru felldir niður en
þeir voru mjög háir. Saltfisktollar voru
einnig lækkaðir og einnig voru lækkað-
ir innflutningstollar á flatfiski, lúðu,
6 ÆGIR