Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1995, Blaðsíða 10

Ægir - 01.08.1995, Blaðsíða 10
Sambland af vísindum og snilligáfu Framtak hf. eykur umsvifin „Megintilgangurinn mef) kaupunum var að bjóða aukna þjónustu og víkka út starfsgrundvöll okkar og þannig treysta rekstur fyrirtækisins," sagði Magnús Aadnegard framkvæmdastjóri og einn þriggja eigenda Framtaks hf. í Hafnarfirði í samtali við Ægi. Hinir tveir eru Þór Þórsson og Óskar Björnsson. Kaupin sem vísað er til eru kaup Framtaks hf. á Boga hf., stillingaverkstæði sem margir kannast við og árum saman var til húsa í Súöarvogi en er nú komið undir sama þak og Framtak hf. vib Dranga- hraun lb í Hafnarfirbi. Bogi hefur einkum fengist við stillingar á olíuverkum og eldsneytiskerfum en slíkt er sérhæfb þjónusta og ekki margir sem fást vib það. Magnús Aadnegard, framkvæmdastjóri Framtaks (til hægri), og Sigurður Finnbogason verkstjóri við vél sem verið var að stilla þegar Ægi bar að garði. „Það eru sárafáir á landinu sem eru virkilega snjallir í þessu," segir Magnús. Starfsmenn Boga starfa áfram hjá Fram- taki við stillingar og miðla nýjum mönnum af sérfræðiþekk- ingu sinni en kunnugir segja að stilling olíuverka sé sam- bland af vísindum og snilligáfu. Framtak hf. var stofnað 1988 og hefur þegar unnið sér fast- an og traustan sess á sínum markaði. Fyrirtækið vinnur við vélaviögerðir, viðhald, stillingar og alhliða smíðavinnu. „Okkar helstu viðskiptavinir eru fiskiskip, fragtskip og smærri bátar en við gerum vib allt sem er bilað og stillum allar vélar hvort sem þær eru á sjó eða landi," segir Magnús. Meðal viðskiptavina Framtaks em einnig þeir sem reka stórar vélar í landi, vörubílstjórar og bændur. Allur kaupskipaflotinn hjá Framtaki Framtak hf. sér um viðgerðir í skipum Eimskips, Samskips, Nesskips og Jökla svo segja má að allur kaupskipafloti íslend- inga sé í þeirra höndum. Hjá Framtaki hf. starfa um 30 manns, flestir vélvirkjar eða vélstjórar og margir þeirra hafa lært sitt fag hjá Magnúsi, sem er vélvirkjameistari. „Eftir 20 ár í þessu fagi em nemarnir orönir fleiri en ég hef tölu á," segir Magnús. „Það gengur ekkert í þessu nema hafa góðan mannskap og það höfum við svo sannarlega." Vinnusvæði Framtaksmanna er allt landið því oft þarf að fara út á land og gera viö skip á staönum og vinna langan vinnudag. Með aukinni tækni styttist stöðugt viðverutími kaupskipa sem sigla fasta áætlun sem hvergi má hvika frá svo oft er stuttur tími til stefnu til að gera þab sem gera þarf. „Eitt mikilvægasta atriðiö í þessum bransa er að standa vib áætlanir og ljúka verkinu á tilsettum tíma. Við erum orðnir nokkuð vanir að áætla slíkt." Stærsta vél sem Framtaksmenn hafa farib höndum um var þegar leiguskipið Eurofeeder varð vélarvana í hafi og var dreg- ið til íslands í vor með ónýtan sveifarás. Vélin var 10 þúsund hestöfl, vóg um 100 tonn og þar af var sveifarásinn einn um 16 tonn. Hann var tekinn úr og nýr settur í. „Þetta var gífurlegt verk en við skiluðum því á réttum tíma og vorum harla ánægðir." Hreinlætið ofar öllu Annar stór og vaxandi þáttur í starfsemi Framtaks hf. er innflutningur á fjölbreyttri línu hreinsiefna frá Vecom í Hol- landi. Efnin eru flutt inn í stórum tunnum en sett á smærri brúsa hjá Framtaki og íslenskir miðar settir á. Helstu hreinsi- efnin eru notuð um borð í skipum til að hreinsa loftsíur, tanka og lagnir. Einnig er boðið upp á ryðhreinsi og lyktar- eyði í tanka til ab losna við lykt af fyrri farmi. Efni sem hreinsa mengun úr sjó og vatnstönkum eru í boði og efni sem hreinsa botngróður úr inntökum. Freyðigljái er mebal mjög vinsælla efna frá Vecom en það er fljótandi hreinsilögur sem leysir upp fitu og óhreinindi en inniheldur engin fosföt og er því umhverfisvænn. Allt em þetta lífræn og umhverfis- væn efni þar sem því verður við komið. „Við seljum skipunum efnin á sama verði og þau fá þau á erlendis. Annars myndu þau ekki skipta við okkur," segir Magnús. Sjúkrahús kaupa hreinsilög frá Vecom af Framtaki og nú fjölgar stöðugt sumarbústaðaeigendum meðal viðskiptavina á þessu sviði síðan Örhreinsir kom á markaðinn. Örhreinsir er blanda af lifandi loftháðum og ioftfælnum örverum sem mynda ensím sem brjóta niður úrgangsefni í rotþróm og skólpleiðslum. Efnið er mjög vinsælt í rotþrær við sumar- bústaði, en ekki síður í niðurföll, skólpleiðslur og fituskiljur. Efnið er lífrænt og fullkomlega skaðlaust umhverfinu. „Þetta er efni sem varla þarf að auglýsa því það kynnir sig sjálft. Menn verba svo hrifnir af þessu að þeir segja að nú loksins sé gaman að fara á klósettiö því það ilmar allt svo vel," sagði Magnús að lokum. □ 10 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.