Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1995, Blaðsíða 30

Ægir - 01.08.1995, Blaðsíða 30
Akureyrin EA110 Tæknideild Fiskifélags íslands. 24. inars sl. kom skuttogarinn Akureyrin EA 110 (1369) úr um- fangsmiklum breytingum frá Pól- landi. Breytingarnar fóru fram hjá skipasmíðastöðinni Nauta í Gdynia í Póllandi, en breytingarnar voru hannaðar hjá Teiknistofu Karls G. Þórleifssonar, Akureyri, og Samherja hf. Meginbreytingar voru lenging um 10.2 m, þilfarshœkkun, ný þilfars- hús og skutbreyting; breytingar á aflkerfi; nýr vindubúnaður og breyt- ingar á togveiðibúnaði fyrir tveggja- vörpu tog; breytingar á íbúðum; breytingar á vinnslurými o.fl. Skipið er í eigu Samherja hf. á Akureyri og skipstjóri er Sturla Ein- arsson og yfirvélstjóri er Sigurður Rögnvaldsson. Framkvœmdastjóri útgerðar er Þorsteinn Már Baldvins- son. Ferill skips Skipið, sem upphaflega hét Guðsteinn GK 140, er smíðað í Gdynia í Póllandi áriö 1974 hjá Stocznia im Komuny Paryskiej, smíöanúmer (gerð) B 425/11/3. Skipið var smíðað í flokki Lloyds' Register of Shipping og var í hópi fimm systur- skipa með samsvarandi búnað, sem öll bættust við flotann árið 1974. Hin fjögur eru: Engey RE 1 (1360); Hrönn RE 10 (1365), nú Viðey RE 6; Ver AK 200 (1376), nú Víðir EA 910; og Baldur EA 124 (1383), nú Skutull ÍS 180. Guðsteinn GK var upphaflega í eigu Samherja h.f. í Grindavík, en árið 1983 verða eigandaskipti og skipið fær nafnið Akureyrin EA 10 og í eigu Samherja h.f. á Akureyri, sem breytti skipinu í frystiskip með flakavinnslubúnaöi. Skipið var fyrsta skipið, sem breytt var hérlendis úr ísfisktogara í flakafrystitogara. 30 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.