Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1995, Blaðsíða 13

Ægir - 01.08.1995, Blaðsíða 13
JÚLÍ afkomu stofnsins misgóöa eftir svæðum og nýliðun mismikla eft- ir landshlutum og grásleppan sé ekki ofveidd. VH Fyrirtækið Hneif hf. í Ólafs- ■H vík hefur keypt Sólborgu SU af samnefndu fyrirtæki á Fá- skrúðsfirði. Hneif hf. er í eigu Fiskverkunar Kristjáns Guð- mundssonar í Ólafsvík sem hefur gert út Tjaldana til línuveiða. ■■PV Baldvin Þorsteinsson EA ■■I fékk einn íslenskra togara leyfi til þess að veiða karfa í græn- lenskri landhelgi og fékk mjög góðan afla meðan aðrir togarar sem voru á karfaveiðum á Reykja- neshrygg kvörtuðu undan dræm- um afla. Leyfi Baldvins til veið- anna er hluti af samstarfssamn- ingi Samherja á Akureyri og Royal Greenland. HV Úthlutun á grálúðukvóta til ■■íi íslenskra skipa fer verulega fram úr því sem Hafrannsókna- stofnun lagði til. Grálúðuafli hef- ur verið mjög tregur og fjöldi skipstjóra hefur lýst þeirri skoðun sinni að grálúðan sé stórlega of- veidd og í útrýmingarhættu. PPJ Samið hefur verið við Flens- ksd borg í Hafnarfirði um að skólinn sjái um það nám sem áður fór fram í Fiskvinnsluskólan- um. Hér er um tilraunaverkefni að ræða sem á að standa í tvö ár. PH Hrönn hf. sem gerir út ÍfiU Guðbjörgu ÍS frá ísafirði hættir við að senda skipið til veiða í Smugunni. Förinni er af- lýst vegna eindreginna tilmæla frá norskum aðilum sem lánuðu fé til smíði Guðbjargar. PVB Nótaskipið Beitir frá Nes- kSB kaupstað leggur af stað heimleiðis frá Póllandi eftir gagn- gerar breytingar. Skipt var um nær allt ofandekks á skipinu og settir í það sjókælitankar. Beitir var upp- haflega smíðaður í Þýskalandi 1958 og hét Þormóöur Goði. SJÁVARSÍÐAN MAÐUR MÁNAÐARINS Maður mánaðarins er Jón. Þ. Þór sagnfræðingur, en hann var nýlega ráðinn til að veita forstöðu rannsóknamiðstöð í sjávarútvegssögu sem sett hefur verið á lagg- irnar við Hafrannsóknastofnun. Sjávarútvegsráðherra ákvaö að með þessu skyldi styðja við útgáfu fiskveiðisögu Norður-Atlantshafsins, en ritun hennar er nú í und- irbúningi og stofnun rannsóknamiðstöðvarinnar er hlutur íslands í verkinu og á hún sér enga hliðstæðu meðal annarra þátttöku- z þjóða. Hópur sagnfræðinga víða að úr Evrópu kom 1 saman á málþingi í Vestmannaeyjum í júlí um ritun 1 fiskveiðisögunnar. Þar var lagt á ráðin um þetta | mikla verk en Jón Þ. Þór verður einn þriggja ritstjóra og aðalhöfunda. Á þinginu var reynt að kortleggja þekkingu ýmissa sérfræðinga á þessu sviði og stofnuð samtök um verkið sem Jón Þ. Þór veitir forstöðu. Jón sagði í samtali við Ægi að hér væri um geysi- lega viðamikið verkefni að ræða og frumhugmyndir gerðu ráð fyrir aö það kæmi út í þremur hlutum. Fyrsti hlutinn yrði um einstök hafsvæði, strandmenningu og hafréttarmál, annar hlutinn fiskveiðisaga hvers lands fyrir sig og þriðji hlutinn ritröb eba safn greina um efnið sem er ákaflega víbtækt. Efninu hafa ekki verið gerb heilleg skil áður ogjón sagði mikiö skorta á að fiskveiðisaga skipaði þann sess sem henni bæri í söguritun þjóðanna við Atlantshafið og væru íslendingar ekki þar undanskildir. Gert er ráð fyrir ab fyrsti áfangi verksins taki 4-5 ár en erfitt er að sjá fyrir enda þess í upphafi. Jón Þ. Þór er fæddur 14. ágúst 1944, sonur Sverris Þór skipstjóra og Ingibjargar Jónsdóttur. Hann varð stúdent frá MA og nam sagnfræði við Háskóla íslands og mun verja doktorsritgerð við Gautaborgarháskóla síðar á þessu ári. Jón hefur ritað Sögu ísafjarðar og Eyrarhrepps, Sögu Grindavíkur og tvær bækur um fiskveiðisögu og landhelgismál. Auk þess hefur hann fengist við kennslu og haft afskipti af skák. Jón er kvæntur Elínu Guðmundsdóttur matvælafræðingi og þau eiga þrjú börn. ORÐ í HITA LEIKSINS „Ef stjórna á þessu landi með slíkum ólögum að fórna þurfi heilu sjávarþorpunum á altari kvótaguðsins þá mun nauðsyn brjóta þau ólög." Hörður Kristjánsson ge/ur tóninn í leiðara í Vestfirska fréttablaðinu. „Eg veit að Jakob Jakobsson er ekki óheiðarlegur mabur og hann er ekki viljandi að níðast á sjómönnum." Óskar Þórarinsson útgerðarmaður lýsir mannkostum Jak- obs í Fréttum í Vestmannaeyjum. „Þessi fiskveiðistefna er orðin að trúarbrögðum. Það er búið ab ljúga svo að þjóð- inni um þessi mál að með ólíkindum er." Óskar Þórarinsson afneitar kvótakerf- inu í viðtali við Fréttir. „Ætli maður reyni ekki að bæta sig í golfinu í sumar. Ég væri ánægður ef mér tæk- ist aö lækka forgjöfina jafn mikið og kvótinn hefur verið skertur að undanförnu." Óskar Þórhallsson skipstjóri á Arney KE lýsir verkefnum sumarsins í viðtali við Fi^kifréttir en Óskar fékk ekki síldarkvóta eins og hann hafði reiknað með. „I mínu ungdæmi var svona nafnlaus illgjarn söguburbur kallabur kjaftasögur. Kjaftasögum var stundum komið á kreik til að klekkja á einhverjum." BjöRN DagbjartssóN skammar Morgunblaðið í Fiskifréttum fyrir umfjöllun um um- gengni sjómanna um miðin. ÆGIR 13

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.