Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1995, Blaðsíða 31

Ægir - 01.08.1995, Blaðsíða 31
HELSTU BREYTINGAR Breytingar á stálvirki o.fl. Lenging: Skipið var lengt um 10.2 m, sautján bandabil 600 mm hvert. í lengda hlutanum eru botngeymar fyrir brennsiuolíu og ferskvatn. í lengda hlutanum var efra þilfar (togþilfarið) byggt 400 mm hærra en þaö sem fyrir var og togþilfar fyrir aftan lengda hlut- ann aftur að fiskmóttöku hækkað til- svarandi um 400 mm, frágengið með fláa að aftan. Ný þilfarshús, með til- heyrandi einangrun, klæðningu og frá- gangi, voru smíðuð í lengda hlutann á togþilfar, s.b.- og b.b.-megin, þ.e. rými fyrir togvindumótora, dælurými, verk- stæði og umbúðageymsla. Skutbreyting: Skutur var breikkaður, 800 mm hvoru megin, og smíðuð ný skutrenna, 4000 mm breið í stað 3000 mm, með tilheyrandi lunningum. Þá var smíðaður nýr toggáigi með tilheyr- andi toggálgapalli og smíðuö sæti fyrir flotvörpuhlera í síðum. Nýr skutrennu- ioki var smíðaður og honum komið fyr- ir, svo og tvær fiskilúgur sem veita að- gang að breyttri fiskmóttöku. Ný þilfarshús: íbúðarhæð á togþilfari var stækkuð fram með nýju þilfarshúsi sem nær yfir breidd skipsins. Þá var smíðað þilfarshús, s.b.-megin aftan við núverandi þilfarshús. Það rými tengt og sameinað gamla sjúkraklefanum. Fram- angreind rými eru nýtt til stækkunar á íbúðarými. Atmað: Nýr gálgi var smíðaöur og komið fyrir á honum flotvörpuvindu. Vélbúnaður Framdrifts- og orkuframleiðslukerfi: Snúningshraði aðalvélar var aukinn úr 485 sn/mín í 530 sn/mín, og skráð afl aukið úr 3000 hö í 3900 hö (2868 KW). Breytingar voru gerðar á úttökum nið- urfærslugírs fyrir rafala, þeim breytt úr 1000 sn/mín í 1500 sn/mín. A breytt út- tök á niðurfærslugír voru settir tveir nýir riðstraumsrafalar frá A. van Kaick, 940 KVA. Rafkerfu Nauðsynlegar breytingar voru gerðar á rafmagnstöflu vegna nýrra rafala. Ný greinitafla var sett vegna nýrra þilfarshúsa. Nýjar togvind- ur eru knúnar jafnstraumsmótorum, sem fá afl frá riðstraumskerfi skipsins í gegnum thyristora til afribunar. Annar vélbúnaður: í skipið voru settar tvær sjálfhreinsandi skilvindur frá Alfa Laval af gerð MMPX 304 SPGll og ýmis annar búnaður (hitarar o.fl.) vegna svartolíukerfis, sem sett var í skipið. Vökvaþrýstikerfi: í nýju dælurými, b.b.-megin á togþilfari, var komið fyrir vökvaþrýstikerfi fyrir nýjar hjálparvind- ur. Um er að ræða tvær tvöfaldar dælur, knúnar af 100 KW rafmótorum, og fjór- ar einfaldar dælur, knúnar af 100 KW rafmótorum. Þá voru settar aðrar minni rafdrifnar vökvaþrýstidælur sem þjóna ýmsum hjálparvindum, lúgubúnaði, vinnsluþilfari o.fl. Akureyrin EA110 Óskum áhöfn á Akureyrinni EA 110 til hamingju með nýja hjálparvindukerfið frá Elágglund Vélaverkstæði Sigurðar hf. I Skeiðarási 14,210 Garðabæ, kt. 701294-9989 VJt/ Sími: 565 8850, fax: 565 2860, vsk.nr.: 45296 ÆGIR 31

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.