Ægir - 01.08.1995, Page 8
ísberg. Er botninum náð eða mun sam-
dráttur halda áfram?
„Við höfum reynt aö laga okkur að
samdrætti undanfarin fjögur ár. Við
munum gera það áfram. Það er erfitt að
áætla hvort botninum sé náð. Við höf-
um á síðustu árum byggt upp markaði
fyrir aðrar tegundir og munum halda
því áfram. Norðmenn hafa sótt sig
nokkuð í veðrið og afli virðist vera
aukast hjá Færeyingum og við höfum
reynt að fylla í skörðin með því að
kaupa af þeim."
Nú eru íslendingar farnir að veiða
norsk-íslensku síldina á ný og mörgum
finnst blóðugt að setja hana alla í
brœðslu. Er markaður fyrir hana til
manneldis?
„Það eru talsverðir síldarmarkaðir í
Bretlandi. Norömenn hafa selt þangað
ferska síld árum saman og Skotar veiða
nokkuð af síld. Neyslan hefur alls stað-
ar minnkað og er einkum meðal eldra
fólks. Þetta er eðlileg afleiðing af því
þegar síldin hvarf af markaðnum. Það
gæti orðið þungur róður að kenna
ungu kynslóðinni að borða síld. Til
þess að ná árangri í síldarvinnslu þurfa
fyrirtækin að geta unnið á mjög lágri
framlegð og byggja sína afkomu á
miklu magni. Það verður mjög erfitt
fyrir okkur að keppa við Norðmenn í
sölu á ferskri síld en með fryst síldar-
flök og heila síld eigum við að geta ver-
ið samkeppnisfærir."
Hvemig sérð þú þróunina í ferskfisk-
útflutningi í íslenskum sjávarútvegi?
„Vinnslan hefur verið að færast út á
sjó og frystihúsin að leggja aukna
áherslu á vinnslu í neytendapakkning-
ar. Þessi þróun mun halda áfram. Ég hef
ekki trú á aö útflutningur á ferskum
fiski muni leggjast af þó hann hafi verið
að dragast saman. Ákveðinn hluti mark-
aðarins vill ferskan fisk og svo verður
áfram. Það mun verða einhver þróun í
sölu á ferskum flökum."
Lftil gæði liðin tíð
Hafa kröfur markaðarins breyst mik-
ið á þeim tíma sem þú hefur fengist við
þetta?
„Gæðakröfur hafa aukist og það þýð-
ir ekki lengur að senda lélegan fisk sem
Pétur Björnsson fluttist til Eng-
lands fyrir 14 árum. Nú sér fyrirtæki
hans um sölu á um 70% af íslensk-
um ísfiski í Bretlandi og að auki um
sölu á sjófrystum flökum frá 10
frystitogurum.
áður þótti boðlegur. Á fyrstu árum
gámaútflutningsins gekk á ýmsu. Gám-
arnir voru ekki nægilega góðir og fram-
boðið af fiski var miklu meira svo
stundum var hráefnið orðið á síðasta
snúningi þegar það kom á leiðarenda á
markað í miklum sumarhitum. Þetta er
liðin tíð. Menn horfa meira á gæðin
þegar magnið dregst saman."
Nú hefur þú séð íslenskan sjávarútveg
utanfrá þennan tíma sem þú liefur verið
búsettur ytra. Hefur þú séð miklar breyt-
ingar á ásýnd fyrirtœkja í greininni?
„Ég held að íslensk sjávarútvegsfyrir-
tæki séu almennt mun betur rekin nú
en þau voru áður. Það sem hins vegar
blasir við og skoðanir eru skiptar um, er
sú blokkamyndun sem hefur verið að
eiga sér stað í greininni. Fyrirtæki sam-
einast og stækka og milli þeirra eru
ýmis eignatengsl. Millistór fyrirtæki
hafa átt í vök að verjast og þau sem hafa
byggt sinn rekstur á frystihúsi og ísfisk-
togara hafa átt sérlega erfitt.
Þessari þróun hefur hraöað undanfar-
in ár og menn hafa ýmsar skoðanir á
því hvort þetta sé vont eba gott."
Hefur þitt fyrirtœki dregist inn í átök
stóru sölusamtakanna sem svo mjög
hafa verið áberandi liér lieima?
„Nei, ég get ekki sagt það. Okkar við-
skiptavinir á íslandi eru þverskurður af
íslenskri útgerð og viðskiptavinir okkar
erlendis eru í fæstum tilvikum sameig-
inlegir meb „þeim stóru". Auk þess eru
íslensku sölusamtökin ekki viðriðin sölu
á ísfiski."
Fjárfest á íslandi
Pétur hefur tekið þátt í íslensku at-
vinnulífi með þátttöku í fyrirtækjum.
Stærst þeirra er ísfell sem fæst við sölu
og innflutning veiðarfæra og festi á síð-
asta ári kaup á innkaupadeild LÍÚ sem
nú er rekin undir nafninu Innkaupa-
deildin sf. Það er Hólmsteinn Björns-
son, bróðir Péturs, sem annast þann
rekstur ísfells. í samvinnu við Steinar
Guðmundsson kemur ísfell að Álftafelli
hf. sem selur notaðar og nýjar vélar og
tæki til fiskvinnslu.
Síðastliðið haust stofnuöu þeir bræð-
ur Pétur og Hólmsteinn Bjömssynir svo
fyrirtækið Marex ásamt Sigurði Haralds-
syni en þab fæst við útflutning og sölu
á saltfiski. Samtals eru 15 starfsmenn
hjá þessum fyrirtækjum hérlendis.
Algjör heimóttarskapur
Hvað finnst þá Pétri um þœr reglur að
útlendingar megi ekki fjárfesta í íslensk-
um fiskiðnaði og sjávarútvegi?
„Ég held ab þetta sé algjör heimótt-
arskapur. Okkur er frjálst að fjárfesta
hvar sem okkur sýnist og það ætti að
gilda á hinn veginn. Sá ótti sem menn
virðast hafa af því að úti í heimi bíði
stórir kallar sem allt vilji gleypa er ekki á
rökum reistur. Ef einhver væri fáanlegur
til þess að koma hingað og fjárfesta þá
væri það af hinu góða. Ég held því mib-
ur að þeir séu ekki mjög margir.
Ég er útlendingur í augum laganna.
Ég má ekki fjárfesta í íslenskum fyrir-
tækjum í sjávarútvegi. Ég missti þann
rétt þegar þegar lögin voru sett 1991. Sá
sem á heimili erlendis burtséð frá ríkis-
fangi er útlendingur samkvæmt skiln-
ingi laganna. Þessi lög eru alls ekki í takt
við þá öld sem vib lifum á."
Hvar lærði Pétur að selja fisk?
„Ég hef eiginlega hvergi lært það
nema gegnum mitt starf. Eftir stúdents-
próf frá Akureyri fór ég í Stýrimanna-
skólann og stundaði sjómennsku um
nokkurt skeiö. Ég var bæbi á smærri bát-
8 ÆGIR