Ægir - 01.08.1995, Qupperneq 14
Sterkt sem stál, létt sem fis
Nýjungar hjá Hampiðjunni
„Viö erum í haröri samkeppni á heimsmarkaöi. Viö höf-
um veriö mjög aö sækja okkur í veöriö undanfarin ár,
einkum á sviöi tilbúinna veiðarfæra. Þar ber helst aö
nefna Gloríutrollin sem voru hönnuö og búin til hér meö
íslensku hugviti okkar starfsmanna í samráöi við íslenska
skipstjórnarmenn," sagöi Örn Þorláksson sölustjóri
Hampiðjunnar í samtali við Ægi.
„Okkar helstu viöskiptalönd í Evrópu eru Danmörk,
Noregur, Þýskaland og Portúgal en við höfum einnig selt til
fyrrum Sovétríkjanna, Ástralíu, Nýja-Sjálands, Namibíu,
Chile, Bandaríkjanna og víðar. Það má segja að það sé allur
heimurinn undir og nýjasti vaxtarbroddur okkar á alþjóða-
vettvangi er í Mexíkó."
Hampiðjan er meðal elstu fyrirtækja í íslenskum iðnaöi en
fyrirtækið fagnaði 60 ára afmæli sínu á sl. ári. Stofnendur
Hampiðjunnar voru 13 áhugamenn um íslenskan iönað sem
vildu ekki að íslendingar væru öðrum þjóðurn háðir með
framleiðslu veiðarfæra. Starfsmenn Hampiðjunnar eru nú um
140.100 starfa í nýlegu verksmiðju- og skrifstofuhúsnæði við
Bíldshöfða en 40 á netaverkstæði í Bakkaskemmu á Granda-
garði. Að auki eru 60 starfsmenn í dótturfyrirtæki Hamp-
iðjunnar í Portúgal sem tók til starfa 1990.
Byltingarkennd afurö nýrrar tækni í plastefnum
Örn sýndi Ægi tvær helstu nýjungarnar sem hafa vakið
mikla athygli meðal kaupenda.
„Nýjung í okkar framleiðslu er Dynex tóg sem er byltingar-
kennd afurð nýrrar tækni í plastefnum. Þetta er fiéttað tóg úr
Dyneema ofurþræði sem er fislétt en hefur álíka slitstyrk og
stálvír af sama sverleika og vegur aðeins um 1/6 af þyngd stál-
vírsins. Þannig þolir það endurtekið álag mun betur en vír og
endurteknar beygjur hafa engin áhrif á það en slíkt þolir stál-
vír afar illa.
Það er mjög fljótlegt að splæsa Dynex sem er meðal
annars notað í gilsa, leysislínur, pokalása, höfuðlínur, stór-
möskva, landfestar, dráttartóg, gjarðir og jafnvel akkeris-
festar. Þá hefur Hampiðjan selt Dynex til notkunar í olíu-
iðnaðinum í Noregi. Einnig hafa verið hnýtt trollnet úr því
og er sú framleiðsla á tilraunastigi. Það er enginn vafi á að
þetta ofurtóg á eftir að valda byltingu í gerð veiðarfæra,"
sagði Örn.
Það sem Hampiðjan er að vinna að þessa dagana, í náinni
samvinnu við Sævar Brynjólfsson annan eiganda og útgerðar-
mann línuskipsins Byrs VE 393, er framleiðsla á fiskilínu úr
þessu undraefni. Þróunin hefur verið sú undanfarin ár að
línuskipin hafa leitað sífellt dýpra og á verri botn í leit að nýj-
um tegundum og miðum. Slitsterkari línu hefur þurft til og
w (| r3
i 'V; \) I 'HS
JÉ2- Éjj r. \ - í
f—1 ■ i~ 'rJ Ær
--lnrl iÍHIBM
Örn Þorláksson, sölustjóri Hampiðjunnar (til vinstri), og
Hjörtur Erlendsson, framleiöslustjóri, með nýja Dynex tógið.
nú er svo komið að sumir bátar hafa tekið um borð tæplega
12 mm fiskilínu.
„Þetta finnst okkur vera öfugþróun, því afar óhentugt er
að nota svo svera línu sem tekur á sig mikinn straum, tekur
meira pláss og er óþénugri á margan hátt."
Því hefur Hampiöjan framleitt 7 mm sigurnaglalínu úr
Dynexi sem reynd var um borð í Byr fyrir nokkru. Hjörtur
Erlendsson, framleiðslustjóri Hampiðjunnar, og Örn Þorláks-
son fóru með í þennan tilraunaróður. Reyndar voru nokkrar
gerðir af línu með slitþoli allt að 3.000 kg.
„Línan slitnar ekki fyrr en í fulla hnefana og Sveinn
Valgeirsson, skipstjóri á Byr, og áhöfn hans ætluöu varla að
trúa sínum eigin augum. Við erum mjög bjartsýnir eftir þessa
tilraun og skipstjórar sýna þessu mikinn áhuga enda eykur
þetta möguleika línuskipa mikið."
Flotteinn í stað kleinuhringja
Önnur nýjung sem Hampiðjan hefur sett á markað við
góðar undirtektir er ný gerð af Kraftfloti sem er flotteinn fyrir
net. Annars vegar er um að ræða mjög lipran og grannan tein
með fléttaðri kápu fyrir grásleppu- og ýsunet í sverleikunum
10,12, 14, og 16 mm og hins vegar sveran flottein fyrir stóru
vertíðarbátana í sverleikunum 22 og 25 mm og tryggir Hamp-
iðjan vinnudýpi niður á 250 metra. Grásleppuflotteinninn er
hugsaöur til að leysa af hólmi „kleinuhringina" sem áður
héldu uppi netinu og vilja stundum flækja það og ánetjast.
Grásleppukarlar hafa tekið nýja teininum fegins hendi og
segja að netin fari alltaf klár í sjó og mikill munur sé að draga
þau og greiða úr þeim aflann.
„Eftir sl. grásleppuvertíð hef ég sagt í gamni að það hafi
komið berlega í ljós hverjir hafi verið duglegastir að kaupa
nýja flotteininn á grásleppunetin. Það voru Akurnesingar,
enda fjórfölduðu þeir afla sinn milli vertíða," sagði Örn glað-
ur í bragði að lokum. □
14 ÆGIR