Ægir - 01.08.1995, Page 15
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN
vekur athygli á eftirtöldum útgáfum sínum:
Yfirlitsskýrslur um þjóðarbúskapinn
Snemma árs gefur stofnunin út 50-60 síðna rit
Þjóðarbúskapinn þar sem lýst er framvindu efnahags-
mála á liðnu ári og horfum á líðandi ári. Síðasta rit kom út
í apríl 1995.
Sögulegt yfirlit hagtalna kemur að jafnaði út annað
hvert ár. Þar er hagþróuninni undanfarna áratugi lýst í
tölum. Síðasta rit kom út í júní 1993 og næsta rit er vænt-
anlegt í haust. Efni ritsins er einnig fáanlegt á disklingi.
Annáii efnahagsmáia lýsir í tímaröð helstu aðgerðum
stjórnvalda og atburðum á sviði efnahagsmála. Þetta rit
kom út í janúar 1993 og næryfirtímabilið 1988-1992.
Þá gefur stofnunin út stutta Frétt 5 til 10 sinnum á ári
um það sem efst ef á baugi hverju sinni og Hagvísa
mánaðarlega.
Ritin eru til sölu hjá Þjóöhagsstofnun og í
afgreiðslu Seðlabankans og er verð þeirra á
bilinu 500 til 700 kr. hvert rit. Einnig er boðið
upp á fasta áskrift að öllum útgáfunum eða
hluta þeirra.
Atvinnuvega- og þjóðhagsreikningaskýrslur
Árlega gefur stofnunin út Ársreikninga fyrirtækja þar sem fram
koma samandregnar niðurstöður úr ársreikningum 1100 til 1200
fyrirtækja í velflestum atvinnugreinum. Síðasta rit kom út í janúar 1995
og náði til 1250 fyrirtækja árin 1992 og 1993.
í Atvinnuvegaskýrslu er auk þess að finna ýmislegt annað talnaefni
um atvinnuvegina eins og vinnuafl, veltu, stærðardreifingu fyrirtækja
o.fl. Síðasta rit um þetta efni kom út í júní 1995 og næsta rit er
væntanlegt í haust. Meðal efnis í ritinu er sérkafli um sjávarútveg.
Nýjasta ritið um þjóðhagsreikninga er Búskapur hins opinbera
1993-1994 sem kom út í mars 1995. Á liðnu ári kom út ritið
Þjóðhagsreikingar 1945-1992 en þar birtast nýjar og að nokkru
endurskoðaðar talnaraðir um alla helstu þætti þjóðhagsreikninga frá
stríðslokum. Áður hafa meðal annars komið út í þessum flokki skýrslur
um einkaneyslu, fjárfestingu og þróun þjóðarbúskaparins frá
aldamótum til stríðsloka.
ÞJÓHAGSSTOFNUN
Kalkofnsvegi 1 150Reykjavík
Sími: 569 9500 Fax: 562 6540
ægir 15