Ægir - 01.08.1995, Side 19
ingaviðræður við íslendinga um síld-
veiðar úr stofninum höfðu þau til hlið-
sjónar ráðleggingar Alþjóða hafrann-
sóknastofnunarinnar sem voru á þá leið
að til þess að byggja stofninn upp þyrfti
að halda veiðunum innan ákveðinna
marka. Við töldum okkur vera að bjóða
Islendingum töluvert magn af síld þrátt
fyrir þá staðreynd að þá hafði ekki sést
svo mikið sem uggi innan íslenskrar
lögsögu.
Við vildum finna lausn á þessu máli
sem væri ekki svo langt frá upphafleg-
um kröfum íslendinga. Það réttlættum
við fyrir sjálfum okkur með því aö það
væri nauðsynlegt að koma í veg fyrir
stjórnlausar veiðar skipa frá öðrum ríkj-
um í Síldarsmugunni. En íslenskir hags-
munaaðilar - sem virðast ráða því
hvaða stefnu stjórnvöld taka - hugsuðu
að mínum dómi allt of skammt. Þeir
voru fyrst og fremst með skammtíma-
hagnað í huga en ekki framtíðina."
Hvaða möguleika sérð þú til þess að
takmarka veiðamar í Síldarsmugunni?
„Það gæti reynst erfitt fyrst strandrík-
in standa ekki saman. Þá er þetta opið
haf fyrir hvern sem er. Ef ekki er hægt
að ná stjórn á veiðunum, bæði á þorski
og síld, með samkomulagi milli þjóða,
þá er eina leiðin að færa landhelgina út
fyrir 200 mílur. Það er engin heilög tala.
Viö gætum þurft að fara út í 250-300
mílur til þess að vemda stofnana."
Hvað þótti þér um samkomulag ís-
lendinga og Fœreyinga um síldveiðar í
vor?
„Mér fannst íslendingar ná góðum
árangri í samningunum að fá að veiða
svo mikið innan færeyskrar lögsögu
þótt engin síld væri gengin inn í þá ís-
lensku. En það geta tæplega verið hags-
munir Færeyinga að opna landhelgi
sína með þessum hætti. Norbmenn og
Rússar hafa gert samninga við Færey-
inga um gagnkvæmar veiðiheimildir og
við höfum beint því til stjórnvalda að
þá samninga væri rétt að taka til endur-
skoöunar í ljósi þessa samkomulags."
Útgerðarmenn ráða mestu
Það urðu stjórnarskipti á íslandi í vor,
hafið þið getað merkt einhverjar breyting-
ar á afstöðu nýju stjórnarinnar?
„Við bundum vonir við það, en það
kom ekki fram í samningaviðræðunum
í vor. Hagsmunaaðilar í íslenskum sjáv-
arútvegi, einkum sjómenn og útgerðar-
menn, hafa mikil áhrif á fiskveiðistefn-
una sem er skiljanlegt miðað vib þá erf-
iðleika sem íslenskur sjávarútvegur á við
að glíma um þessar mundir. Það var
greinilegt að þó við teldum okkur vera
að bjóða íslendingum töluverðan veiði-
kvóta þá var það ekki nóg, einkum fyrir
íslenska útgerðarmenn. Það finnst okk-
ur miður, því það bitnar ekki bara á
norskum fiskimönnum heldur einnig
íslenskum. Þetta hefur leitt til aukinna
veiða annarra þjóða skipa á svæðinu. Ef
við verðum að una því í framtíðinni, þá
er þab sök íslendinga að svo er komið,"
segir Audun Marák. □
Þröstur Haraldsson
tók viðtalið hér að framan við
Audun Marák. Þröstur hefur
lengi stundað blaðamennsku,
síðast á Dalvík. Hann er nú
dagskrárgerðarmaður hjá RÚV.
Greinin er afrakstur ferðar
Þrastar til Noregs og
Danmerkur.
BOSCH
ÞEGAR MEST Á REYNIR
DIESELVERKSTÆÐI
VARAHLUTAÞJÓNUSTA
BRÆÐURNIR
DJ œMSSON HF
LÁGMÚLA9 • SÍMI: 553 8825
ÆGIR 19