Ægir - 01.08.1995, Side 22
Halldór Hermannsson sveitarstjóri á Suðureyri:
Fólksflótti og hrun
atvinnuvega blasir við
„Við erum ekki sáttir við þessi lög og
teljum víst að þau hafi í för með sér al-
varlega byggðaröskun," sagði Halldór
Hermannsson sveitarstjóri á Suðureyri í
samtali við Ægi um áhrif nýrra laga um
veiðar krókabáta á það byggöarlag sem
hann veitir forstöðu.
„Við sjáum ekki annað en að með til-
komu þessara laga muni atvinnutæki-
færum fækka verulega við hvern smábát
og sýnist samdrátturinn verða 60% í
sumum tilvikum. Eftir skerðinguna
munu tveir menn hafa atvinnu af bát
sem áður veitti 4-6 manns vinnu. Það
segir sig sjálft í litlu byggðarlagi þar sem
atvinnutækifærin eru ekki önnur og allt
byggist á sjónum, þá mun fólk sitja
uppi annaöhvort án atvinnu eða flytj-
ast á brott."
Halldór benti á aö í kringum 1980
bjuggu 500 manns á Suðureyri og þá
voru unnin 10 þúsund tonn af fiski í
plássinu. Nú eru unnin þar árlega rúm
2 þúsund tonn og íbúar eru 320.
„Grundvöllur búsetu er atvinna
manna og mér finnst furöulegt hvað
stjórnvöld eru hugsunarlaus í sínum að-
gerðum. Það er ekkert hugsað um aö-
stæður á hverjum stað. Sá sem er búsett-
ur t.d. í Hafnarfiröi og gerir út krókabát,
á allt aöra möguleika á að mæta þessari
skerðingu með annarri vinnu en sá sem
er búsettur á Suðureyri. Hér eru engir
möguleikar og skerðing á afla þýðir ekk-
ert nema samdrátt í tekjum og hugsan-
legan búferlaflutning. Mér finnst að
okkar ágætu þingmenn mættu hugsa
meira um manninn á annesjunum rétt
eins og þann sem býr í miðri höfuð-
borginni."
Hver verða viðbrögð íbúa á Suöureyri
við setningu þessara laga. Eru menn
svartsýnir á framtíðina?
„Hér ríkir hvorki svartsýni né von-
leysi en menn eru orðnir langþreyttir á
óréttlæti og tillitsleysi stjórnvalda gagn-
vart þeirra eigin lífi. Menn skilja ekki
hvernig maður sem situr á skrifstofu í
Reykjavík og reiknar út hve mikill fiskur
sé í sjónum geti stjórnab því hvort við
lifum eða deyjum. Þab sem eitt sinn var
spaugað með, að Vestfiröir ættu að segja
sig úr lögum við afganginn af landinu,
verður æ minna gamanmál. Ef 70%
þjóðarinnar skilja ekki lífsviðurværi
hinna þá hlýtur eitthvað að gerast. Það
geta ekki verið tvær þjóðir í 260 þúsund
manna landi."
Stjórnvöld neyða menn í svelti
Súgfirskir trillukarlar risu gegn stjórn-
völdum síöastliðinn vetur með því að
róa á auglýstum banndögum. Má búast
við slíkri uppreisn í kjölfar þessara laga?
„Mér finnst ótrúlegt hve biðlund
manna og þolinmæði er mikil. Menn
telja sig vera löghlýðna og sætta sig við
aö stöðugt sé þrengt meira aö þeim.
Stjórnvöld virðast geta neytt menn til
þess að herða sultarólina meira og
meira þangað til þeir svelta til dauða."
Halldór sagði að þeir Súgfirðingar
sem hefðu flutt burt á undanförnum
árum hefðu átt erfitt með að selja eign-
ir sínar.
„Verðið er auðvitað ekkert sambæri-
legt. Það má segja að mönnum hafi
með harmkvælum tekist að gefa eignir
sínar. Þessi lög sem nú eru sett til höf-
uðs krókabátum eru ekkert annað en
eignaupptaka hjá fjölda manna víða um
land."
Nýleg jarðgöng eru nær tilbúin og
tengja þau Suðureyri við ísafjörð og
Flateyri. Mun tilkoma þeirra ef til vill
sporna gegn þeirri byggöaröskun sem
Halldór spáir?
„Það þarf ákveðna frumvinnslu til
þess að skapa þjónustugreinar. Hér er
ein verslun, einn rafvirki og einn smið-
ur. Með minnkandi umsvifum brestur
grundvöllur þessarar þjónustu. Það sama
á við um ísafjörð og þau svæði sem við
erum að tengjast. Samdráttur hér kemur
niður á ísafirði og öllu svæðinu. Þannig
leiðir eitt af öðru og jarðgöng eða ekki
jarðgöng skipta ekki öllu máli."
Til hvers aö byggja jarðgöng?
„Til hvers er að byggja jarðgöng fyrir
marga milljarða ef byggð á svæðinu er
að deyja út, fyrst og fremst fyrir til-
verknað stjórnvalda. Ef ekkert breytist
hvað varðar aflaheimildir hér þá eru
þessi jarðgöng ekkert annað en bruðl."
Suðureyri:
Aflaverðmæti 1991: 110.460
Þar af krókabátar: 3.158
Aflaverðmæti 1994: 128.966
Þar af krókabátar: 93.329
(í þúsundum króna)
Halldór
Hermannsson
sveitarstjóri á
Suðureyri:
„Stjórnvöld
virðast geta neytt
menn til að herða
sultarólina meira
og meira þangað
til þeir svelta til
dauða.“
22 ÆGIR